Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.05.2013, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 17.05.2013, Blaðsíða 70
É g hef alltaf haft mikinn áhuga á tónlist og eitt árið gaf konan mér kassagítar í jólagjöf. Ég hafði reyndar talað um að mig langaði í trommusett. Svo rakst ég á bók með öllum lögum Bítlanna og gripum við þau og fór að gutla. Þetta hefur undið upp á sig og ég hef verið í gítarnámi í GÍS í tvo vetur og er nú farinn að spila með þessari hljómsveit,“ segir Haukur Holm frétta- maður. Haukur, sem er 57 ára, spilar á gítar með hljómsveitinni Smyrlunum. Hljóm- sveitin æfir einu sinni í viku á veturna og Haukur gekk til liðs við bandið í fyrra. „Þetta eru nokkrir svilar sem hafa verið að spila saman. Einn þeirra er eigin- maður barnsmóður minnar og mér var boðið að spila með. Nafnið kom þegar kona eins var spurð út í bandið og ruglaði saman Svilarnir og Smyrlarnir.“ Hvernig tónlist spila Smyrlarnir? „Við spilum rokk í sinni fjölbreyttustu mynd. Tom Petty, Santana, Stones og við erum aðeins að reyna við Pink Floyd með takmörkuðum árangri. Enginn okkar er afburðamaður en það eru allir mjög áhugaamir og glaðir. Við höfum mikla ánægju af þessu þó við séum ekki með Jimmy Page- og Bonham-takta. Og það er alls enginn Mick Jagger í hópnum.“ Smyrlarnir hafa að mestu haldið sig í æfingahúsnæðinu en hafa þó troðið upp „innan stórfjölskyldunnar“ eins og Haukur orðar það. „Við horfum auðvit- að vonaraugum á stóra sviðið en það er kannski meira af vilja en mætti.“ Er þetta ekki bara afsökun til að hittast og drekka bjór? „Nei nei, við erum allir bláedrú. Okkur veitir ekki af því að vera með öll skynfæri klár. Við erum ekki orðnir nógu góðir til að spila fullir.“ Haukur er pabbi Georgs Holm, bassa- leikara Sigur Rósar, og Kjartans Dags Holm úr For a Minor Reflection, en hann spilar einmitt með Sigur Rós á tónleikum um þessar mundir. Haukur var spurður hvort hann hefði eitthvað spilað með strákunum sínum. „Nei, ekki ennþá. En ég er alltaf að væla í þeim um það. Svo á ég einn strák enn og hann er harðasti krítíkerinn minn. Hann er þrettán ára og er að læra á gítar. Hann sér fyrir sér að spila með bræðrum sínum en er fullur efasemda um að ég muni gera það,“ segir Haukur. Hann segir að ungi maðurinn sé óhrædd- ur við að segja sína skoðun. „Einu sinni var ég að spila á gítarinn inni í stofu og hann var í baði. Þá kallaði hann í mömmu sína og sagði við hana: „Ég veit að pabba dreymir um að verða gítarleikari en það geta bara ekki allir draumar ræst!,““ segir Haukur og hlær. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is  Þórhallur Guðmundsson Bókelskur united-maður Hallar sér að Gyrði þegar illa gengur Kolbrún Bergþórsdóttir ærði óstöðuga aðdá- endur Manchester United með pistli sem hún skrifaði í Morgunblaðið í vikunni. Það undraðist hún mjög að fullorðnir karlmenn væru með böggum hildar og í miklu fári vegna starfsloka Sir Alex Ferguson knatt- spyrnustjóra. Mörgum þótti Kolbrún vega að vitsmunum United-fólks með því að hvetja það til þess að lesa bækur frekar en láta allt hverfast um boltann. Þórhallur Guðmundsson verkefnastjóri er dyggur stuðningsmaður United en les einnig mikið af bókum og tók sneiðina því ekki til sín. „Ég er einn af þeim sem er alltaf að lesa nokkrar bækur í einu og þar sem kærastan mín er eins þá er náttborðið, og eiginlega allt laust pláss í svefnherberginu, undirlagt af bókum.“ Þórhallur hefur nýlokið við að lesa Blood Meridian aftur en hún er eftir einn uppá- haldshöfundinn hans, Cormac McCarthy. „Í augnablikinu að lesa tvær bækur, Travel in dangerous places eftir John Keay, safn sagnaþátta um hrakningar og, oftast, dauða löngu gleymdra landkönnuða, og Útlaga eftir Jakob Ejersbo sem mér gengur hægt með.“ Á náttborðinu er líka Ljóðasafn Stefáns Harðar Grímssonar og Hér vex enginn sítrónuviður, ljóðasafn Gyrðis Elíassonar „en ég glugga stundum í ljóð þegar tilvistar- kreppan yfir slöku gengi Manchester United er að drepa mig.“ Hvað Kolbrúnu varðar hefur United-bóka- ormurinn þetta að segja: „Pistill Kolbrúnar var eflaust ljómandi skemmtilegur og skrif- aður til gamans og leiðinlegt að ég hafi ekki lesið hann, nóg urðu sumir kynbræður mínir reiðir og fannst að þeim og gáfnafari þeirra vegið, því að það er eitthvað svo heillandi við þá staðalímynd að við sem fylgjumst með knattspyrnu séum þröngsýnir og ólæsir bjánar. Eins og það er líka eitthvað heillandi við staðalímynd bókmenntafræðingsins að það séu bara sérvitrar og skringilegar mið- aldra konur sem veljist í þau fræði.“ -þþ Þórhallur les ekki sjálfsævisögur leikmanna og sjúkranuddara Manchester United en gæti hugsað sér að lesa Managing my life eftir Alex Ferguson.  tónlist haukur holm kominn í hljómsveit eins oG synirnir Ekki orðnir nógu góðir til að spila fullir Fréttamaðurinn Haukur Holm stendur vaktina á RÚV um þessar mundir. Á þriðjudagskvöldum slekkur hann þó á símanum því þá er æfing hjá hljómsveitinni Smyrlunum. Haukur á tvo syni sem spila fyrir þúsundir áhorfenda með Sigur Rós en harðasti gagnrýnandinn er yngsti sonur- inn, þrettán ára. Ég veit að pabba dreymir um að verða gítarleikari en það geta bara ekki allir draumar ræst! Smyrlarnir á vikulegri æfingu á þriðjudagskvöldið. Frá vinstri eru Haukur Holm fréttamaður og gítarleikari, Ævar Rafn Kjartansson trefjabátasmiður sem spilar á bassa, trommuleikarinn Guðmundur Vignir Hauksson sem er forstjóri hrein- gerningafyrirtækis, Eysteinn Sigurðsson fasteignasali sem spilar á gítar og sitjandi er Reynir Þorvaldsson byggingatækni- fræðingur sem spilar á gítar og syngur. Á myndina vantar Kristján Sigurðsson skólastjóra sem spilar á píanó. Ljósmynd/Hari Garðar Thor í gamanþætti Skarphéðinn Guðmundsson, nýráðinn dag- skrárstjóri Sjónvarpsins, er greinilega farinn að láta til sín taka þegar kemur að leiknu innlendu efni. Tökur eru að hefjast á nýrri gamanþátta- röð í sex þáttum fyrir Sjónvarpið en stefnt er á sýningar með haustinu. Arnór Pálmi, höfundur hinna ágætu þátta Hæ Gosi, sem Skjár einn hefur sýnt, skrifar handritið ásamt leikkonunni og grínistanum Önnu Svövu Knútsdóttur. Almannatengillinn fjölhæfi, Karl Pétur Jónsson, framleiðir ásamt Arnari Knútssyni, einum framleiðenda bíómyndarinnar Svartur á leik. Anna Svava verður í öðru aðalhlutverkanna á móti Garðari Thor Cortes sem gerði það gott fyrir margt löngu í sjónvarpsþáttunum um Nonna og Manna en er á síðustu árum þekktari fyrir ómþýða rödd sína sem söngvari. Sérstakur Ari Eldjárn Sjónvarpið býður þó ekki með allt grín til haustsins og eftir rúma viku verður sýndur sérstakur þáttur með grínistanum Ara Eldjárn. Umgjörð þáttarins minnir um margt á skemmtiþætti Dave Allen sem nutu mikilla vinsælda í Sjónvarpinu fyrir nokkrum áratugum. Eins og þeir muna sem komnir eru til vits og ára sat Allen glaðhlakkalegur í háum stól, með viskíglas við höndina, og reytti af sér brandara á milli þess sem hann sýndi stutt leikin gríninnskot. Ari mun hafa svipaðan hátt á þótt viskíinu verði sleppt en hann var á fullu í tökum fyrir þáttinn í vikunni. 70 dægurmál Helgin 17.-19. maí 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.