Fréttatíminn - 17.05.2013, Side 6
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hægviðri og sólríkt, Þykknar upp
v-til í kvöld.
Höfuðborgarsvæðið: Sól framan
af degi, en Síðan Skýjað.
sa-strekkingur vestantil, en Hægviðri a-
til. fremur Hlýtt. slydda austanlands.
Höfuðborgarsvæðið: gola eða StrekkingS-
vindur, þurrt og hlýtt.
Hlýtt, 10-13 stiga Hiti, rigning
s- og v-til eftir Hádegi.
Höfuðborgarsvæðið: rigning
með köflum en milt.
Hlýnar mjög
um hvítasunnu
það kom að því. Spáin er nokkuð ein-
dregin í þá veru að á á laugardag og
sérstaklega á hvítasunnudag munu mildir
vindar leika um landið. hitinn fer upp
fyrir 10 stig norðan- og austan-
lands. Sólin skín, snjórinn
sígur og eitthvað tekur upp.
vestantil verður strekkings-
vindur, fínasta veður á
laugardag, en fer að rigna
á sunnudag. Stendur ekki
lengi því aftur kólnar eftir
helgi.
8
7 7
7
10
8
8 11 10
9
8
8 13 11
10
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Á stæður þessa munar eru þær að mis mikill kostnaður er við leiki og rétt að ítreka að
tekjurnar eru margfalt meiri af leikjum
karlalandsliðsins. Heimaleikir karla-
landsliðsins eru að öllu jöfnu miklu
dýrari, einfaldlega vegna fleiri áhorf-
enda,“ segir Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, um ástæður þess
að kostnaður Knattspyrnusambands
Íslands vegna A landsliðs karla árið
2012 var um það bil þriðjungi hærri
en vegna A landsliðs kvenna. Samkvæmt ársreikningi
KSÍ fyrir árið 2011 var kostnaður vegna A landsliðs
karla um það bil helmingi hærri en vegna A landsliðs
kvenna.
Séu tölur um kostnað KSÍ við yngri landsliðin skoð-
aðar kemur í ljós að á árunum 2011 og 2012 var kostn-
aður við karlaliðin hærri með einni undantekningu, hjá
U 19 ára liðunum 2012. Munurinn hjá yngri liðunum
er þó minni en hjá A landsliðunum. Að sögn fram-
kvæmdastjóra KSÍ er fyrst og fremst horft til verkefna
liðanna en ekki kostnaðar sem ræðst af þeim hverju
sinni. „Fjöldi verkefna er nokkuð jafn og það er það
sem skiptir máli,“ segir Þórir og bætir við að jafnræði
ríki meðal liðanna en að það sé undarleg nálgun að
ætla að jafna kostnað við liðin.
Að sögn Þóris er ljóst að laun Lars Lagerbäck séu
hærri en laun fyrirrennara hans og sömuleiðis hærri
en laun Sigurðar Ragnars
Eyjólfssonar, landsliðsþjálfara
kvenna, þó að ekki fáist upp
gefið hve mikill munurinn er
þar sem laun þjálfaranna eru
trúnaðarmál. „Á síðasta ári
greiddi KSÍ tæpar fjórar millj-
ónir til Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins vegna lands-
leikja karla á heimavelli en
slíkt gjald þarf ekki að greiða
vegna kvennalandsleikja,“
segir Þórir ennfremur. Í árs-
reikningi KSÍ fyrir árið 2012
kemur fram að tekjur vegna sjónvarps-
réttinda af leikjum karlalandsliðsins
hafi verið 240 milljónir króna.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari
kvennalandsliðsins, segir að hann
hafi getað haft þá umgjörð um liðið
sem hann kjósi þó alltaf sé hægt að
vilja meiri peninga og fleiri leiki. „Við
reynum auðvitað alltaf að gera hlutina
eins ódýrt og hægt er. Það sem snýr að
fótboltanum hjá okkur er í mjög góðu
horfi og ég hef verið ánægður með
fjölda leikja og æfinga hjá okkur,“ segir Sigurður.
ferðalögin eru stærsti útgjaldaliðurinn
Að sögn Þóris eru stærstu útgjaldaliðirnir hjá lands-
liðunum fargjöld og gisting. Á síðasta ári tók kvenna-
landsliðið þátt í Algarve Cup þar sem liðið lék fjóra
leiki í sömu ferðinni. Karlaliðið var ekki með slíkt ein-
stakt verkefni og lék fjóra leiki í fjórum mismunandi
ferðum sem sé dýrara. Þórir segir þetta helstu ástæðu
þess að útileikir karlalandsliðsins séu kostnaðarsam-
ari. „Á síðasta ári lék karlalandsliðið vináttulandsleiki í
Japan og Svartfjallalandi sem voru mun kostnaðarsam-
ari en til dæmis vináttulandsleikur kvennalandsliðs-
ins í Skotlandi,“ segir Þórir. Dagpeningagreiðslur til
landsliðsfólks á ferðalögum eru jafnar sem og umgjörð
ferða.
Kvennalandslið Íslands er í fimmtánda sæti á heims-
lista Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins en karlalandsliðið
í því sjötugasta og þriðja. Á
síðasta ári lék kvennalands-
liðið tólf leiki, þrjá heimaleiki
og níu utanlands en karla-
landsliðið lék tíu leiki á árinu,
þar af sjö utanlands. Það sem
af er þessu ári hefur kvenna-
landsliðið leikið fimm leiki en
karlalandsliðið tvo.
dagný Hulda erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Kostnaður KsÍ vegna landsliða
Þriðjungi minna til A
landsliðs kvenna en karla
í ársreikningi kSí fyrir síðasta ár kemur fram að kostnaður vegna karlalandsliðsins í knattspyrnu
var 33% hærri en vegna kvennalandsliðsins. Árið 2011 var munurinn 48%. framkvæmdastjóri
kSí segir eðlilegar skýringar á þessum mun.
kostnaður við landsliðin 2011 munur
a lið karla 91.463.465 a lið kvenna 47.255.015 48%
u 21 karla 40.780.265
u 19 karla 15.462.211 u 19 kvenna 11.638.722 25%
u 17 drengja 27.205.141 u 17 stúlkna 22.634.086 17%
kostnaður við a landsliðin 2012 munur
a lið karla 124.799.814 a lið kvenna 84.219.562 33%
u 21 karlar 30.078.889
u 19 karlar 16.876.490 u 19 konur 18.799.858 10%
u 17 drengir 27.303.242 u 17 stúlkur 21.822.397 20%
íslenska kvennalandsliðið er í 15. sæti styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins en karlalandsliðið í 75. sæti. kostnaður
kSí við karlalandsliðið var þriðjungi hærri á síðasta ári. að sögn framkvæmdastjóra sambandsins er það m.a. vegna meiri inn-
komu af leikjum og tekna af sjónvarpsréttindum.
tekjur af landsleikjum 2012
a landslið karla 24.083.883 kr.
a landslið kvenna 2.685.480 kr.
tekjur af landsleikjum 2011
a landslið karla 11.700.000 kr.
a landslið kvenna 800.000 kr.
Sigurður ragnar
eyjólfsson.
þórir
hákonarson.
..fást í næstu verslun!Ora grillsósur..
Grillum saman
í sumar
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka dagaOpið kl. 11 - 16 laugardaga
GERIÐ GÆÐASAMANBURÐ!
Er frá Þýskalandi
69.900
VELDU
GRILL
SEM EN
DIST
OG ÞÚ
SPARA
R
Frábært grill
fyrir íslenskar
aðstæður
16,5
KW
Þyngd 55 kg
Fjöldi gas og
kolagrilla á
frábæru verði
eru postulínsemaleraðar
Grilleining og grillgrindur
Skúa undir öllu fyrir tu
kynntu þér
málið!
SIÐMENNT
w w w . s i d m e n n t . i s
Málsvari veraldlegs samfélags
Siðmennt
Skráðu þig í félagið á www.sidmennt.is
6 fréttir helgin 17.-19. maí 2013