Fréttatíminn - 17.05.2013, Blaðsíða 8
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Með Borgun tekur þú við öllum kortum – hvar og hvenær sem er
Fáðu frekari upplýsingar á www.borgun.is eða í síma 560 1600
Sundföt
Borgarferð
til Frankfurt
Myndavél14.990 kr.
63.900 kr.
89.900 kr.
Pizzuveisla 7.400 kr.
Loksins virka
debetkort á netinu
Það eru álíka mörg debet- og kreditkort í umferð á Íslandi.
Tekur þín vefverslun við öllum kortum?
F ormenn Framsóknar-flokksins og Sjálfstæðis-flokksins eru við það að
leggja lokahönd á stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar sem verður
undir stjórn Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar. Stjórnarsáttmál-
inn verður ekki jafn ýtarlegur og
sáttmáli fráfarandi ríkisstjórnar
heldur líkari þeim sem flokkarnir
tveir gerðu á árunum sem þeir voru
saman í stjórn þar sem verkefni
voru tilgreind og afmörkuð en ekki
útfærð. Þrjú mál verða keyrð í gegn
strax á sumarþingi.
Í fyrsta lagi verður strax ráðist
í skattalækkanir og skerðingar á
bótum aldraðra og öryrkja verða
afnumdar. Gera má ráð fyrir ferns
konar skattalækkunum á kjörtíma-
bilinu, lækkun tekjuskatts, virðis-
aukaskatts, tryggingagjalds og
vörugjalds auk þess sem skattkerf-
ið verður einfaldað. Ekki verður
hægt að ráðast í allar þessar skatt-
breytingar undir eins en áherslan
verður fyrst í stað á lækkun trygg-
ingagjalds og lækkun tekjuskatts.
Annað brýnt mál sem lagt verður
fyrir sumarþing er skuldavandi
heimilanna. Útfærsla á tillögum
Sjálfstæðisflokksins um sérstakan
skattaafslátt til afborgunar af hús-
næðisláni munu að öllum líkindum
verða lögð fyrir sumarþing og jafn-
vel þingsályktunartillaga unnin
upp úr hugmyndum Framsóknar-
flokksins um leiðréttingu stökk-
breytingu verðtryggðra lána þótt
útfærslur á þeirri hugmynd séu
ekki fullmótaðar.
Þá er gert ráð fyrir að aðildarvið-
ræðum við ESB verði hætt án þess
að til sérstakrar afgreiðslu þingsins
komi. Þær verði einfaldlega settar
í salt þangað til látin verði fara
fram þjóðaratkvæðagreiðsla um
hvort hætta skuli viðræðunum.
Formennina tvo greinir hins vegar
á um tímasetningu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Bjarni leggur áherslu
á að hún fari fram á fyrrihluta kjör-
tímabilsins en Sigmundur Davíð
vill bíða þangað til undir lok þess.
Ráðherrum fjölgað í tíu
Ákveðið hefur verið að fjölga ráð-
herrum í tíu. Sjálfstæðisflokkurinn
leggur áherslu á að velferðarráðu-
neytinu verði skipt upp og yfir því
verði tveir ráðherrar, heilbrigðis-
ráðherra og félags- og trygginga-
málaráðherra. Til greina kemur að
skipta einnig upp tveimur öðrum
ráðuneytum, annars vegar atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
RíkisstjóRn Fjölgun um tvo RáðheRRa
Skattalækkanir strax í sumar
Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar undir forystu Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar er að líta dagsins ljós. Bjarni Benedikts-
son verður fjármálaráðherra í nýrri ríkisstjórn sem skipuð
verður 10 ráðherrum. Því verður fjölgað um tvo frá núverandi
fyrirkomulagi. Strax á sumarþingi verður lagt fram frumvarp
um skattalækkanir og skuldavanda heimilanna.
Forsætisráðherra
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Gunnar Bragi
Sveinsson
Eygló
Harðardóttir
Frosti Sigurjónsson
eða
Vigdís Hauksdóttir
Fjármálaráðherra
Bjarni
Benediktsson
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Illugi
Gunnarsson
Kristján Þór
Júlíusson
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Ráðherrar Framsóknarflokks
Ráðherrar Sjálfstæðisflokks
8 fréttaskýring Helgin 17.-19. maí 2013