Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.05.2013, Side 13

Fréttatíminn - 17.05.2013, Side 13
„Þá gæti fólk átt bíl en notað hann lítið. Það er dýrt að kaupa sér bíl og greiða af honum öll gjöld, svo sem tryggingar, skoðunargjald og bifreiðagjald. Ef þessi gjöld væru beintengd notkun gæti fólk átt bíl og notað hann við sérstök tilefni, til dæmis til ferðalaga en notað aðra samgöngumáta til og frá vinnu,“ segir Magnús. Grænt hagkerfi Samtök um bíllausan lífsstíl leggja mikið upp úr því að það verði góður kostur fyrir fólk að segja sig úr bílamenningunni og hagnast raunverulega á því. Til þess að svo megi verða þurfi að rjúfa þann víta- hring sem bílamenningin er og innan samtakanna hafa þróast hugmyndir um upptöku rafvæddrar vegatollunar sem yrði þannig í framkvæmd að GPS tæki yrðu sett í alla bíla og hægt yrði að inn- heimta gjöld fyrir notkun á vegakerfinu. Farartæki yrðu þá flokkuð eftir þyngd og vegir eftir álagi og hvenær dags þeir yrðu eknir. Sem dæmi má nefna að dýrara yrði að keyra Miklubrautina á háannatíma en öðrum tímum. Slíkt gjaldtökukerfi myndi virka sem hvati til að nota almennings- samgöngur til og frá vinnu. Slíkt myndi líka virka sem hvati til að fólk myndi kaupa í matinn í sínum hverfum. „Þá myndi líka vera fullorðið fólk á gangi í hverfunum. Það er eðlilegt að aldurshóp- arnir eigi í samskiptum. Unglingarnir eru svolítið einir í úthverfunum að bíða eftir að verða fullorðnir og fá bílpróf,“ segir Magnús. Slík rafræn gjaldtaka tíðkast hvergi í heiminum og telur Magnús mikilvægt að Íslendingar sýni frumkvæði í stað þess að herma alltaf eftir öðrum. „Við ættum að sýna íslensku hugviti virðingu og þróa kerfið innanlands. Með því sköpum við góða ímynd og verðum öðrum til fyrirmyndar í umhverfis- og samgöngu- málum,“ segir Magnús og bætir við að lík- legt sé að tal um GPS tæki í bíla komi illa við marga því fólk rugli sjálfu sér oft við bílana og kalli slíkt persónunjósnir þó það noti greiðslukort og farsíma sem einnig virka eins og staðsetningarbúnaður. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 3 -0 5 2 2 NÝSKÖPUN EYKUR VERÐMÆTI Arion banki styður við nýsköpun í atvinnulífinu Fjölmörg fyrirtæki í viðskiptum við Arion banka hafa nýsköpun að leiðarljósi í sinni viðskiptaþróun og eru að ná eftirtektar- verðum árangri. Við bjóðum þér á námskeið Mörg framsæknustu fyrirtæki heims nota Business Model Canvas við að þróa starfsemi sína og efla nýsköpun. Við bjóðum þér á námskeið um Business Model Canvas í höfuðstöðvum Arion banka 30. maí nk. kl. 9–10.30. Skráning og nánari upplýsingar á arionbanki.is. LANDHELGISGÆSLAN BETRI NÝTING TÆKJA MEÐ VERKEFNUM ERLENDIS Reykjavík er ein dreifbýlasta borg í heimi og á Íslandi eru fleiri bílar á mann en nokkurs staðar í heiminum og líka fleiri bílar en ökuskírteini. Það er líka athyglis- vert að á höfuð- borgarsvæðinu eru fleiri bílar á mann en á lands- byggðinni. ar bílinn sinn til að fara á fundi fær það borgað fyrir hvern kílómetra sem það ekur og þarf ekki að greiða skatt af þessum greiðslum. Sá sem fer hjólandi á fund og mæt- ir ferskur eftir útiveruna fær hins vegar enga fjárhagslega umbun. Þvert á það sem almennt er talið er Magnús þeirrar skoðunar að bensínverð sé ekki hátt og nefnir sem dæmi að einn lítri af bens- íni kosti 250 krónur. Eyði bíll tíu lítrum á hverja hundrað kílómetra kosti kílómetri því aðeins 25 krónur. „Ef þú átt bíl þá eru hvatar til að nota hann sem mest,“ segir Magnús og bætir við að betra væri að gjaldtaka væri tengd notkun. Magnús Jensson, for- maður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir engum hollt að upplifa samfélagið sitt í gegnum bílrúðu og að óeðlilegt sé að fara alltaf með tonn af járni með sér hvert sem maður fer. Sjötíu manns á Melhaga í Reykjavík. Myndin sýnir þrjá mismunandi sam- göngumáta. viðtal 13 Helgin 17.-19. maí 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.