Fréttatíminn - 17.05.2013, Side 16
6 mánuðir liðu frá því hönnunarverslunin Atmo var opnuð á Laugavegi þar til versluninni var lokað í vikunni. Rekstraraðilinn staðhæfir að vöruflæði íslenskra hönnuða standi ekki undir rekstri verslunarinnar.
7.000
Íslendingar bera í sér
stökkbreytt krabba-
meinsgen sem auka
líkur á sjúkdómnum
um 80 prósent.
Otrivin Comp, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 0,5 mg/ml og ipatrópíumbrómíð.
Ábendingar: Einkenni nefstíflu (þrútinnar nefslímhúðar) og nefrennslis af völdum kvefs. Skammtar og
lyfjagjöf fyrir fullorðna eldri en 18 ára: 1 úðaskammtur í hvora nös eftir þörfum, að hámarki þrisvar á
sólarhring. Að minnsta kosti 6 klukkustundir skulu líða milli tveggja skammta, draga skal úr skömmtum
þegar einkenni lagast. Ekki má nota Otrivin Comp lengur en 7 daga þar sem langvarandi notkun
xýlómetazólínhýdróklóríðs getur leitt til bólgu í nefslímhúð og aukinnar slímmyndunar. Snýttu þér.
Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta
kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina.
Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið
ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ofnæmi fyrir atrópíni eða svipuðum efnum (t.d.
hýoscýamín eða skópólamín), ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn, ef þú ert með
nefþurrk vegna slímhúðarbólgu eða ert með gláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú
ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, hjarta- eða æðasjúkdóm,
skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, erfiðleika við þvaglát (stækkaðan blöðruhálskirtil), æxli í nýrnahet-
tum, ef þú færð oft blóðnasir (t.d. aldraðir), ert með þarmalömun, slímseigjusjúkdóm, þunglyndi og ert á
lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður
en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis
Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Nýtt lyf sem verkar bæði gegn
nefstíflu og nefrennsli
Andaðu með nefinu
Nýtt!
www.rekstrarland.isRekstrarland | Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100
Einnota vörur fyrir
veisluna.
Pappadiskar einnota, 23 cm, 100 stk. í pakka – Verð: 779 kr.
Hampi pálmadiskur, 310x180 mm, 25 stk. í pakka – Verð: 2.529 kr.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
31
55
9
Verð frá
779kr.
Mikið úrval. Vistvæn mál,
bakkar, diskar, hnífar o.fl.
Nýr veruleiki blasir við foreldrum barna í Reykjavík
Hættulegri heimur
T íu ára stúlka var tekin með valdi á leið heim úr skóla í Vesturbæ Reykjavíkur á miðvikudag, sett í
aftursæti bíls karlmanns á fertugsaldri sem
ók með hana á afskekktan stað og braut á
henni kynferðislega. Að því loknu
ók maðurinn með stúlkuna aftur í
vesturbæ Reykjavíkur og hleypti
henni þar út, en þó fjarri heimili
hennar. Þaðan gekk hún til síns
heima. Á meðan frelsissviptingin
stóð yfir hafði maðurinn í frammi
grófar hótanir við stúlkuna, að því
fram kemur í tilkynningu frá lög-
reglu.
Skólar í Vesturbænum sendu for-
eldrum tölvupóst vegna málsins
í gær þar sem sagt var frá því að
umsjónarmenn og stjórnendur skól-
anna ræði við börnin í 3.-10. bekkj-
um um hvernig bregðast megi við
í aðstæðum sem þessum. Ekki er
farið í 1. og 2. bekki þar sem þessi
mál eru talin svo vandmeðfarin að betra sé
að foreldrar ræði þau við svo ung börn, að
því er fram kom í tölvupóstinum.
Frammi fyrir þessu stóð ég einmitt við
morgunverðarborðið í gærmorgun. Hvernig
áttum við, foreldrarnir að ræða þennan
hryllilega atburð sem átt hafði sér stað í
næsta nágrenni við okkur, við sjö ára dóttur
okkar? Hún þarf að vera upplýst um þessa
hættu en samt ekki að verða sjálf svo hrædd
að hún þori ekki út úr húsi.
Í tölvupóstinum frá skólanum voru leiðbein-
ingar. Helst þarf að ræða málin á þann hátt að
niðurstaðan verði ekki að börn vantreysti full-
orðnum almennt. Hins vegar verður að kenna
börnum að fara ekki upp í bíl hjá ókunnugum,
ekki tala við ókunnuga, ekki þiggja neitt frá
ókunnugum og ef barnið verður hrætt við ein-
hvern á það að fara strax á næsta stað þar sem
finna má fólk. Einnig þarf að kenna börnum
að taka vel eftir öllu ef það upplifir áreiti eða
hættu, svo sem manneskjunni sem veldur ótt-
anum, bílnúmeri eða öðrum auðkennum.
Umfram allt þurfa foreldrar sjálfir að vera
vakandi, og samfélagið allt. Í orðsendingu
skólanna segir: „Látum börnin okkur varða:
ef þið sjáið eitthvað – segið eitthvað – gerið
eitthvað. Hikið ekki við að hafa samband við
lögregluna – 112.“
Lögreglan hefur einnig brugðist hratt við
og hefur hert eftirlitið í Vesturbænum. Hún
bendir á að mikilvægt sé að hafa í huga að
svona atburðir séu afar sjaldgæfir, samfélag
okkar sé öruggt en engu að síður sé mikil-
vægt að vera meðvituð um þær hættur sem
leynast í samfélaginu.
Ekkert handhægt og aðgengilegt upplýs-
ingaefni er til fyrir foreldra um hvernig best
sé að ræða við börn sín um mál sem þessi.
Skólarnir hvetja enn til þess að fagaðilar afli
þessa efnis eða fái það útbúið.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
26
kunnir rithöf-
undar taka þátt í
Bókmenntahátíð
í Reykjavík í sept-
ember. Þar af eru
sextán erlendir
höfundar og tíu
íslenskir.
2.204
nýir fólksbílar seldust hér á landi frá
áramótum til 10. maí. Það er umtals-
verð fækkun frá því í fyrra þegar
selst höfuð 3.338 bílar á sama tíma.
150
starfsmenn hafa
bæst við hjá Latabæ
við tökur á fjórðu
þáttaröðinni í mynd-
veri þess í Garðabæ.
Þrettán þættir verða
teknir upp og verða
þeir sýndir á næsta ári.
VikAn í tölum
Helgin 17.-19. maí 201316 fréttir vikunnar