Fréttatíminn - 17.05.2013, Side 27
Ég dressaði
mig bara
upp, setti
á mig ljósa
hárkollu og
fór í svartan
kjól með
hvítum
blómum.
LEIÐIN TIL
HOLLUSTU
www.skyr.is
Norræna matvælamerkið
Skráargatið auðveldar þér að
velja holla matvöru. Vörur með
Skráargatinu verða að uppfylla
ákveðin næringarviðmið og er
merking fyrir þær matvörur
sem teljast hollastar í sínum
fæðuflokki.
Skyr.is drykkirnir standast
þessar ströngu kröfur, þú getur
því treyst á hollustu Skyr.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Dana International sigraði í Eurovison árið 1998
og vakti það gríðarlega athygli að kona sem
hafði farið í kynleiðréttingu næði svona langt í
keppninni. „Ég man þegar ég sá hana fyrst. Mér
fannst hún svo gullfalleg og ég öfundaði hana af
því að fá að gera það sem hún vildi.“
Svanhvít var enn í felum og leið enn illa þegar
hún komst á þrítugsaldurinn. Hún hafði þó
eignast nokkra trausta vini sem elskuðu hana þó
hún væri það sem hún kallar „öðruvísi.“ Svan-
hvíti var samt alltaf ljóst að hún væri tvíkyn-
hneigð. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika þegar kom
að samskiptum við hitt kynið gat hún allavega
talað við stráka um konur. „Ég þoldi samt ekki
hvað margir hlutgera konur. Mér fannst alltaf
svo óþægilegt að hlusta á það. Eins og til dæmis
í ræktinni þá voru strákar alltaf að tala um rassa
á einhverjum stelpum. Mér fannst þetta bara
ósmekklegt,“ segir hún og er bersýnilega mis-
boðið. „Margir vinir mínir héldu að ég kæmi út
úr skápnum sem hommi, að einn daginn myndi
ég bara mæta með stóran og myndarlegan mann
sem héti Bóbó og væri rosalega góður við mig,“
segir Svanhvít hlæjandi og bætir við: „Meira að
segja pabbi hélt að ég væri hommi!.“
Steig stóra skrefið
Rétt fyrir þrítugt var Svanhvít enn inni í
skápnum sem transkona og hafði reynt að fremja
sjálfsvíg. „Þarna var ég komin að punkti í lífi
mínu þar sem ég hugsaði: „Annað hvort dey ég
eða ég stíg fram.“ Ég var búin að reyna sjálfsvíg
og hafði hugsað með mér að ég yrði að gera bet-
ur næst. Ég var bara búin að fá nóg. Mér fannst
líf mitt svo innantómt og ég hataði mig svo mik-
ið. Ég elska mig miklu meira í dag,“ segir hún
stolt. Þarna ákvað Svanhvít að taka málin í eigin
hendur og það með heldur dramatískum hætti.
„Ég var á leið í fjórfalt þrítugsafmæli hjá vini
mínum og ákvað að ég myndi loksins bara vera
ég.“ Á meðan foreldrar hennar horfðu á fréttirn-
ar var hún fyrir framan spegilinn í kjallaranum
að hafa sig til. „Ég dressaði mig bara upp, setti á
mig ljósa hárkollu og fór í svartan kjól með hvít-
um blómum. Svo málaði ég mig bara á fullu til að
geta komist út án þess að foreldrar mínir kæmu
niður og sæju mig. Þegar ég var komin út gerði
ég mér grein fyrir að þetta var í fyrsta skipti sem
ég var í kvenklæðum fyrir utan dyrnar heima.
Ég fór síðan út í bíl og fannst eins og allir væru
að horfa á mig og dæma mig.“ Svanhvít hringdi
þá í eina bestu vinkonu sína og sagðist þurfa að
sýna henni svolítið. „Ég ók fyrst til hennar til að
sjá viðbrögðin. Hún bara brosti og faðmaði mig
þegar hún sá mig og ég fékk algjört spennufall.
Ég ákvað þá að ég myndi láta verða af því að fara
í afmælið.“
Svanhvít mætti viljandi snemma í þetta fjór-
falda þrítugsafmæli til að þurfa ekki að ganga
Framhald á næstu opnu
viðtalh 27 Helgin 17.-19. maí 2013