Fréttatíminn - 17.05.2013, Síða 28
Sumir urðu kannski hissa en ég fékk eiginlega
engin neikvæð viðbrögð. Íslendingar eru greini-
lega svona frjálslyndir.
Krumma
112 Reykjavík
587-8700
www.krumma.is
Öryggi - Gæði - Leikgildi
LikeaBike
34.950 kr.
Sandkassasett
1.390 kr.
Winter þríhjól
19.990 kr.
Berg Grafa
24.300 kr.
Berg trampolín
inn í fullan sal af fólki, stífmáluð á háum hælum. „Ég
fann kaldan svita þegar ég kom á staðinn. En það
merkilega er að það tóku mér allir vel. Einn vinur
minn sagði bara „Vá!“ þegar hann sá mig og aðrir
hrósuðu mér fyrir hugrekkið. Ég sagði þeim samt að
ég væri ekkert hugrökk heldur hefði ég bara þurft að
gera þetta. En þetta kvöld var ég frelsuð. Sumir urðu
kannski hissa en ég fékk eiginlega engin neikvæð við-
brögð. Íslendingar eru greinilega svona frjálslyndir,“
segir Svanhvít.
Aðgerðin bara liður í ferlinu
Hún byrjaði skömmu síðar í hormónameðferð og
hefur verið í undirbúningsferli fyrir sjálfa kynleiðrétt-
ingaraðgerðina í á þriðja ár. Hún er mjög spennt fyrir
aðgerðinni sem fer fram í dag en lítur ekki á hana sem
neinn endapunkt. „Ef eitthvað þá lít ég á hana sem lið í
ferlinu. Þetta er ferli sem tekur allt lífið að mínu mati.
Ég eyddi þrjátíu árum í að reyna að vera gaur. Nú ætla
ég að eyða afganginum af lífinu að vera kona. Aðgerðin
er í mínum huga bara byrjunin á næsta skrefi.“
Eftir að Svanhvít kom út úr skápnum sem transkona
glæddist ástarlífið heldur. Hún fór ekki á eitt einasta
stefnumót þegar hún var enn í skápnum en fyrsta árið
eftir að hún steig út fór hún á einhver sex stefnumót.
Hún er nú í sínu fyrsta alvöru sambandi og er búin
að gifta sig. „Ég kynntist konunni minni á netinu. Ég
þekkti transkonu í Bretlandi sem sagði mér frá trans-
konu í Texas, Erin, sem hefur verið með dellu fyrir Ís-
landi síðan hún var fjórtán ára og var að læra íslensku.
Við töluðum saman á netinu í marga mánuði. Erin kom
svo til Íslands um þarsíðustu áramót og við hittumst í
fyrsta skipti. Þetta voru sennilega bestu áramótin mín
og hún var alveg heilluð af flugeldunum.“ Svanhvít seg-
ist aðspurð ekki vita af hverju í ósköpunum Erin hafi
haft svona mikinn áhuga á Íslandi en hún hafi sannar-
lega grætt á þessum áhuga. „Hún eiginlega flutti svo
til Íslands og við giftum okkur 16. apríl. Þetta var lítil
og falleg athöfn hjá sýslumanni,“ segir Svanhvít. Erin
heldur enn heimili í Bandaríkjunum en kom til Íslands
fyrir nokkrum dögum til að vera með eiginkonu sinni
og styðja hana eftir kynleiðréttingaraðgerðina. Sjálf
hefur hún ekki farið í aðgerð en hefur verið í hormóna-
meðferð í átta ár, frá því hún var nítján ára gömul. Hvað
hormónameðferðir varðar segir Svanhvít í gamansöm-
um tóni að þær hafi hjálpað henni að skilja konur. „Það
er ekki til sú kona sem ég get ekki hafið samræður
við með því að spjalla um hormónin. Konur eru í svo
miklum tengslum við sín hormón á meðan karlmenn
eru ekki í neinum tengslum við líkama sinn.“
Ertu strákur eða stelpa
Svanhvít hefur í nokkurn tíma lifað sem kona og er
komin með ökuskírteini sem á stendur „Svanhvít Ada
Björnsdóttir.“ Hún er þannig í þeirri einstöku stöðu að
hafa lifað í samfélagi þar sem ýmist er litið á hana sem
karl eða konu. „Ef ég fæ alzheimer þá ætla ég að vona
að ég muni alltaf eftir því þegar ég hitti litlu stelpuna
í ísbúðinni. Ég var þá að fara út með ísinn minn þegar
ég mæti stelpu, um fjögurra eða fimm ára gamalli,
sem var að koma inn með pabba sínum. Hún horfði
aðeins á mig og spurði, alveg óhrædd: „Ertu strákur
eða stelpa?“ Ég sagði glaðlega að hún yrði nú bara að
ákveða sjálf. Eftir smá umhugsun sagði stelpan síðan
ákveðið: „Stelpa!“ Ég labbaði svo út í bíl með ísinn í
hendinni og tárin í augunum. Mér fannst þetta svo
fallegt. Oft eru það litlu hlutirnir í lífinu sem skipta svo
miklu máli.“
Síðustu árin hefur Svanhvít lagst í mikla sjálfsskoð-
un og komist að þeirri niðurstöðu að það sem skipti
mestu máli sem áhrifavaldar í lífi fólks sé annars vegar
ást og hins vegar ótti. „Óttinn er á bak við allt sem er
slæmt. Óttinn við að vera tekið illa, óttinn við að vera
öðruvísi. Óttinn gerði mig reiða og bitra. Ég gat ekki
elskað sjálfa mig og gat þess vegna ekki elskað aðra.
Hægt og rólega er ég byrjuð að elska og leyfa mér að
faðma fólk. Ég veit að ég hefði aldrei fundið þessa ást
ef ég hefði verið áfram inni í skápnum. Ég á mína mis-
jöfnu daga en ég veit að það er mitt verk í lífinu að yfir-
stíga óttann og læra að elska.“ Ég segi við Svanhvíti að
þetta séu góð lokaorð. Þegar hún hefur fylgt mér að
móttökuborðinu hjá CCP er komið að kveðjustund. Allt
í einu finnst mér of ópersónulegt að taka bara í höndina
á henni þannig að ég læt vaða, og faðma hana. „Gangi
þér vel í aðgerðinni, Svanhvít.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Svanhvít öðlaðist frelsi þegar hún mætti, öllum að óvörum, stífmáluð í kvenmannsfötum í ferfalt þrítugsafmæli. Ljósmynd/Hari
28 viðtal Helgin 17.-19. maí 2013