Fréttatíminn - 17.05.2013, Blaðsíða 44
44 húðvörur Helgin 17.-19. maí 2013
www.hjahrafnhildi.is S. 581 2141
Skoðið úrvalið á
facebook!
Lancôme og Biotherm
Nauðsynleg sólarvörn
Sólarvörn verður að innihalda UVA
og UVB sólarvarnarsíur til að vernda
húðina fullkomlega. Bæði Lancôme og
Biotherm eru með frábæra sólarvörn.
Í Lancôme er til sólarlína sem heitir
Génifique Soleil sem bæði verndar
húðina fyrir skaðlegum geislum sólar
og verndar að auki æskugen húðarinn-
ar. Þessi lína er með sólarvörn fyrir
andlit með sólarvarnarstuðli 15, 30 og
50. Einnig fyrir líkama með sólarvarn-
arstuðli 15 og 30 og kælandi after sun.
Biotherm er með sólarvörn fyrir
bæði andlit og líkama sem hentar fyrir
alla fjölskylduna. Vernd gegn UVA/
UVB geislum.
Í mörgum dagkremum eru sólvarn-
arstuðlar, t.d. SPF 15. Þegar svona
stuðull er nefndur þá er meira verið
að tala um umhverfisvörn. Sem sagt,
vörn fyrir mengun og léttum sólar-
geislum.
Nauðsynlegt er að nota sólarvörn á Íslandi. Bæði er sólin sterk og
ósonlagið er orðið þunnt og því komast skaðlegir geislar sólar í gegn
sem við verðum að vernda húðina fyrir.
SwiSS nature hLúð að húðinni dagLega
Ný kynslóð sólarkrema
Sólarkrem frá Swiss Nature eru komin á markað. Seyði alpa-
jurtarinnar má finna í öllum vörum Swiss Nature en engin
aukaefni eru í kremunum.
„Swiss Nature býður upp á nýja
kynslóð sólarkrema sem verndar
og mýkir húðina ásamt því að veita
húðfrumum einstaka næringu og
auka sólbrúnku. Þá eru kremin án
allra aukaefna og hlúa að húðinni
daglega,“ segir Valgerður Guð-
mundsdóttir, eigandi Vala MG sem
flytur inn Swiss Nature sólarvörn.
Aðalsmerki Alpanna
Edelweiss, seyði alpajurtarinnar,
má finna í öllum vörum Swiss
Nature. „Þessi villta jurt vex í 1800
til 3000 metra hæð yfir sjávar-
máli og er aðalsmerki Alpanna.
Hvert blóm sem notað er í kremin
er handtínt og innan tveggja tíma
frá tínslunni eru virku frum-
efnin notuð úr jurtinni. Með þeirri
aðferð nást frábær gæði seyðis,“
segir Valgerður.
„Seyði alpajurtarinnar inniheld-
ur tannín og sameindir andoxun-
arefna. Tannínin eru vatnsheld
og verja ystu lög húðarinnar gegn
umhverfisþáttum, til dæmis sól og
sígarettureyk. Þau hjálpa endur-
myndun vefjanna og hafa að auki
bakteríu-, sýkla-, og sveppaeyð-
andi áhrif. Þá næra andoxunar-
efnin húðina ásamt því að mýkja
hana,“ bætir Valgerður við.
Valgerður segir ýmsar vörur í
boði frá Swiss Nature aðrar en sól-
arkrem. „Swiss Nature er einnig
með breiða línu bæði fyrir konur
og karla, og hefur fengið góð við-
brögð við henni undanfarin þrjú
ár. Þá er von á barnalínu á næst-
unni sem við erum einnig mjög
spennt fyrir.“
Hægt er að kaupa Swiss Nature
vörurnar á heimasíðunni www.
skincare.is og hjá Valgerði á Lækj-
argötu 34 í Hafnarfirði. -ss
h vað ef við gætum gert húðina okkar unglegri á einni viku. Super-serumin frá Lancôme, Visionnaire og Ge-nifique eru með loforð sem vekja athygli. Serum vinna
dýpra í húðlögunum heldur en kremin gera og eru því yfirleitt
viðbót við þína venjulegu krem-rútínu. Genifique æskuvakinn
er ein mest verðlaunaða snyrtivara í heimi, búin að fá um 200
verðlaun í snyrtivöruheiminum síðan það kom á markað fyrir
um 4 árum. Genifique er fyrir allan aldur frá ca. 25 ára, og
örvar framleiðslu á próteini sem er mest af í ungri húð. Með
aldrinum minnkar þessi framleiðsla en með því að örva hana
aukast gæði húðarinnar svo um munar. Á aðeins 7 dögum
sjáum við strax mun, húðin geislar af æsku, það er eins og
hún lyftist innan frá er dúnmjúk og sem silki viðkomu. Húð-
liturinn er ótrúlega jafn, og áferð húðarinnar miklu fallegri
og jafnari. (Við erum auðvitað ekki að tala um að húðin verði
eins og á ungbarni á einni viku, en raunverulegur munur sést
þegar grannt er skoðað og manni líður strax vel í húðinni
og finnur að hún er öll að lifna við.) Rannsóknir sýna að því
lengur sem við notum Genifique halda gæði húðarinnar áfram
að aukast, árangurinn stoppar ekki á einhverjum ákveðnum
punkti eins og svo oft gerist heldur er eins og æskupróteinið
sé bara óstöðvandi. Semsagt dásamleg örvun.
Visionnaire hins vegar gerir við, og er líka fyrir 25 ára og
eldri. Húðsnyrtivara sem er svo áhrifamikil að helmingur
kvenna vill ekki gangast undir fegrunarmeðferðir eftir að
hafa notað Visionnaire. Innblásturinn er fenginn frá nátt-
úrunni: þegar planta skemmist, framleiðir hún „Jasmonate“
sem hrindir af stað vörn og græðandi ferli til að lagfæra hana
sjálfa. Rannsóknarstofur Lancôme hafa unnið í 12 ár með
20 mismunandi úrefni af „Jasmonate“, til að finna mólekúl
sem hefur fullkomna næmni við húðina. Út frá þessum rann-
sóknum varð til mólekúlið LR 2412 sem vinnur eins og boð-
beri í húðinni til að lagfæra og græða húðina. Visionnaire er
háþróuð húðlagfæring sem lagfærir hrukkur, opnar húðholur
og ójöfnur á áhrifaríkan hátt. Mild vara sem hentar einnig vel
fyrir viðkvæma húð og má fara að augnsvæði. Visionnaire er
m.a. búið að fá Marie Claire verðlaunin.
Ef þú ert svo heppin að eiga bæði Genifique og Visionnaire
skaltu endilega nota þau saman, hversu frábært er það ekki
að geta örvað með Genifique og gert við með Visionnaire. Hjá
Lancôme byrjar allt með Genifique, þú notar 2-3 dropa á allt
andlitið og síðan 1 pumpu af Visionnaire yfir, ef þú ert með
þurra húð muntu sennilega vilja dagkrem yfir en annars getur
þú sleppt því og sett farðann þinn næst. Þú getur líka notað
Genifique undir dagkremið þitt á morgnana og Visionnaire
undir næturkremið þitt á kvöldin.
Bára Hafsteinsdóttir, snyrtifræðingur.
genifique og ViSionnaire
Unglegri á einni viku
Lancome
Renergie Multi-Lift
Reviva-Plasma serum
Öflugt, endurlífgandi þykkni sem var
hannað í sama anda og aðrar vörur í
Renergie línunni.
Nýtt endurlífgandi þykknið með
byltingarkenndri áferð sem er fyllt með
milljónum virkra dropa. Auðgað með
peptide duo tækni. Samvinna tvenns
konar hátækni, Multi-tension tækni, sem
styrkir og gefur húðinni meiri teygju og
þéttleika. Rannsóknir sýna að yfir 70%
vina þinna taka eftir breytingunni.