Fréttatíminn - 17.05.2013, Qupperneq 48
48 húðvörur Helgin 17.-19. maí 2013
U NA skincare er eitt af fáum íslenskum húðvörumerkjum sem hafa vísindalegar rannsóknir á bak við
sig. Í rannsóknunum kom í ljós að íslenskt
bóluþang stendur upp úr þegar kemur að
virkni andoxunarefna. Virkni þeirra er mun
öflugri en virkni annarra þekktra andoxun
arefna og má þar nefna Cvítamín, Evítam
ín og grænt te,“ segir Eybjörg Einarsdóttir,
sölu og markaðsstjóri Marinox ehf, sem er
íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem framleið
ir UNA kremin. Rannsóknirnar á lífvirku
efnunum í íslenskum sjávarþörungum og
andoxunarvirkni þeirra voru unnar af Matís
undir stjórn dr. Harðar G. Kristinssonar,
rannsóknarstjóra Matís, og Rósu Jónsdótt
ur, fagstjóra í lífefnum og líftækni.
Lífvirk efni sem unnin eru
úr þörungum
„Það sem gerir vöruna einstaka er mjög
hátt magn lífvirkra efna sem unnin eru úr
þörungunum. Þangið er tínt á sérvöldum
kortlögðum hreinum svæðum við Íslands
strendur, en þörungasvæðin hér eru miklu
hreinni en annars staðar í heiminum,“ segir
Eybjörg.
Þá eru lífvirku efnin einangruð með
háþróaðri aðferð. Þau eru frostþurrkuð til
að tryggja hámarksvirkni þeirra og síðan
notuð í kremin. „Lífvirku efnin sem finnast
í þörungunum er jafnframt hægt að nota
í matvæli og fæðubótarefni. Fjölfenólin í
þanginu gefa andoxunarvirknina, þau vinna
gegn frjálsum hvarfeindum sem eru skað
legar húðinni, auk þess sem lífvirku sykr
urnar í þörungunum binda raka einstaklega
vel og hafa jákvæð áhrif á húðina. Steinefni
eru mikilvæg húðinni og amínósýrur eru
byggingarefni húðarinnar, en öll þessi efni
eru í UNA extraktinu,“ segir Eybjörg.
Sérvalin innihaldsefni
UNA húðvörurnar samanstanda af endur
nærandi dagkremi og uppbyggjandi nætur
kremi og munu nýjar vörur frá UNA skinc
are líta dagsins ljós á þessu ári. Eybjörg
segir sérstöðu og kosti UNA húðvaranna
vera einstaka á heimsvísu. „UNA húðvör
unar eru með hátt hlutfall lífvirkra efna sem
unnin eru úr sjávarþörungum, engin Para
ben rotvarnarefni eru notuð, þá eru heldur
engin litar né ilmefni notuð í vörunar.
Önnur innihaldsefni sérvalin og kremin eru
ekki prófuð á dýrum.“
„Kremin innihalda jafnframt virk efni
eins og hýalúrónsýru, peptíð, Bvítamín,
kókosolíu og Aloe vera. Kremunum er pakk
að í loftþéttar umbúðir með pumpu sem
verndar innihaldsefnin og henta þau jafnt
dömum sem herrum og öllum húðgerðum.
Reynsla neytenda bendir til þess að kremin
dragi úr ákveðnum húðvandamálum, s.s.
roða og bólgum,“ segir Eybjörg.
Mikil eftirspurn
UNA húðkremin eru búin að vera á mark
aðnum í tæpt ár og eru kremin fáanleg í
lyfjaverslunum, helstu snyrtivöruversl
unum, hjá flugfélögum og í fríhöfnum. „Við
tökur hafa verið einstaklega góðar. Það er
mikil breyting á íslenskum markaði hvað
varðar viðhorf til íslenskra vara. Neyt
endur vita að öflug íslensk fyrirtæki bjóða
nú hágæða vöru sem að baki liggja margra
ára vísindalegar rannsóknir. Það má segja
að hér sé kominn góður vísir að nýrri fram
leiðslugrein, þ.e. framleiðsla virkra húðvara
með innihaldsefni sem unnin eru úr ís
lensku hráefni. Óhætt er að segja að þetta
sé ánægjuleg þróun sem víst er að mun
styrkjast enn meir á næstu árum,“ segir
Eybjörg.
Þá segir Eybjörg að á stuttum tíma hafi
skapast eftirspurn á erlendri grundu fyrir
UNA húðvörunum og er útflutningur haf
inn. „Ljóst er að fylgst er með UNA skinc
are erlendis þar sem íslenskar rannsóknir
og vísindi hafa skapað sér sess á þessum
vettvangi.“
UNA skincare kremin eru í sölu um allt
land og má finna upplýsingar um útsölustaði
og kremin á www.unaskincare.com og á
www.facebook.com/UNAskincare. ss
UNA húðvörUr EfNi UNNiN úr þörUNgUm
Íslenskt bóluþang stendur upp úr
Í UNA húðvörunum er hátt magn lífvirkra efna sem unnin eru úr sjávarþörung-
um. Þá innihalda vörurnar engin ilm- og litarefni og eru ekki prófuð á dýrum.
Húðin er stöðugt að endurnýja sig og því
er regluleg hreinsun húðar nauðsynleg.
Mikilvægt er að velja hreinsi og and
litsvatn við hæfi. Húðin getur verið
mjög mismunandi, allt frá því að vera
mjög þurr, með yfirborðsþurrk og mik
inn raka yfir í að vera feit og glansandi.
Flestir eru með normal húð sem skiptist
í að vera normal/þurr eða normal/feit.
Margar konur með normal húð eru með
blandaða/feita húð á „T“ svæði. („T“
svæðið er enni, nef og haka og myndar
einskonar T yfir andlitið.)
Hinn fullkomni andlitshreinsir fyrir
normal húð er Galatéis Douceur sem
hægt er að nota bæði fyrir andlit og
augu. Formúla Galatéis Douceur er
fersk, létt og kremkennd sem nær að
hreinsa öll óhreinindi af eins og farða,
augnskugga og mengun.
Til að klára hreinsun húðarinnar er
æskilegt að nota andlitsvatn. Hreinsirinn
skilur eftir sig fína filmu sem andlitsvatn
ið hreinsar af. Að auki lokar andlitsvatn
ið húðholunum, frískar og gefur ljóma.
Jafnar bæði raka og sýrustig húðarinnar.
Til eru margar tegundir af andlitsvötn
um en þau sem eru fyrir normal/þurra
húð eða normal/blandaða húð eru Toni
que Doucheur og Tonique Éclat. Best er
að setja andlitsvatnið í bómull og strjúka
yfir andlit og háls kvölds og morgna.
Á yfirborði húðarinnar safnast fyrir
dauðar húðfrumur. Sérstaklega á svæð
um við nef og á höku. Gott er að hreinsa
þessar dauðu húðfrumur af með korna
skrúbb einu sinni til tvisvar í viku.
Exfoliance Clarté kornaskrúbburinn
frá Lancôme er einstaklega góður til
að ná af dauðum húðfrumum á yfir
borði húðarinnar. Í honum eru tvær
tegundir af kornum. Annars vegar lítil
blá (örkristallar) og svo stór hvít með
ensímum sem flýta fyrir losun dauðra
húðfruma.
Húðin er stærsta líffærið okkar og
bregst við hita og kulda. Á Íslandi er
allra veðra von og því er næringamaski
góð auka vörn fyrir húðina. Frostið,
hitabreytingarnar og vindurinn þurrka
upp húðina og gera hana stífa og þurra.
Hydra Intense rakamaskinn gefur
húðinni næringu, raka, sléttir úr fínum
línum og gefur ljóma í húðina. Hann er
einstaklega þægilegur í notkun. Mask
inn er settur á þurra hreina húð og lát
inn virka í 5 mínútur.
Þegar húðumhirðan og hreinsunin er
góð þá gera kremin og serumin meira
gagn þar sem húðin er hrein og laus við
óhreinindi eins og dauðar húðfrumur.
Serum eru til í mörgum gerðum
og hlutverk þeirra eru mismunandi.
Serum veitir húðinni næringu, eykur
ljóma, styrkir, þéttir, byggir upp og
vinnur á fínum og djúpum línum. Flest
serum eru sett á hreina húðina undir
krem. En það getur þó verið mismun
andi eftir tegundum. Serum eru í flest
um tilfellum þunnur vökvi sem inni
heldur mikið magn af virkum efnum. Í
kremum eru virku efnin líka en þá er að
auki búið að bæta við efnum sem næra
og gefa raka í húðina.
UmhirðA húðAr
Hvernig eigum við að viðhalda
æskuljómanum?
Til að viðhalda „æskuljómanum“ í húðinni þrátt fyrir aldur, er nauðsynlegt að hreinsa og næra húð-
ina vel. Þó að farði sé ekki notaður daglega þarf samt sem áður að hreinsa óhreinindi af húðinni.
Eybjörg Einarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Marinox ehf.
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
ReykjavíkuRaPótek, Seljavegi 2 - LyfjaboRg aPótek,
Borgartúni 28 - gaRðSaPótek, Sogavegi 108
uRðaRaPótek, Grafarholti - aPótek HafnaRfjaRðaR,
Tjarnarvöllum 11 - ÁRbæjaRaPótek, Hraunbæ 115
LyfjaveR Suðurlandsbraut 22 - aPótek gaRðabæjaR,
Litlatúni 3 - akuReyRaRaPótek, Kaupangi við Mýrarveg