Fréttatíminn - 17.05.2013, Qupperneq 50
50 húðvörur Helgin 17.-19. maí 2013
Hægir á öldrun húðarinnar
„Dearmatude „Meta Therapy“ er ný meðferð sem dregur
úr öldrun húðarinnar og dregur einnig úr sjáanlegum um-
merkjum öldrunar,“ segir Undína Sigmundsdóttir, eigandi
Frcosmetic sem er umboðsaðili Dermatude Meta Therapy
á Íslandi. „Fyrst verður að örva náttúrlegt ferli húðarinnar
innan frá svo að framleiðsla kollagens og elastíns í húðinni
fari aftur af stað og hringrásarferill húðarinnar eflist. En
jafnframt verður að bæta húðinni upp það sem hún hefur
farið á mis við, með virkum efnum utanfrá.“
Broshrukkur fyrstu einkenni öldrunar
Undína segir að fyrstu merki um að húðin sé farin að
eldast komi fram við u.þ.b 25 ára aldur. „Húðin þynnist,
blóðflæði minnkar og það hægir á náttúrlegri framleiðslu
kollagens og elastíns en húðin tapar þá stinnleika og teygj-
anleika. Vegna fækkunar fitukirtla dregur úr fitufram-
leiðslunni og húðin þornar.“ Hún segir fyrstu ummerki um
öldrun húðar vera þau að broshrukkur fara að sjást kring-
um augun. „Broshrukkur eru einkum áberandi hjá þeim
sem hlæja mikið og brosa. Með tímanum myndast þannig
djúpar, varanlegar hrukkur. Þetta náttúrulega öldrunar-
ferli kemur innan frá en ytri aðstæður flýta fyrir ferlinu,
eins og óhóflega miklir útfjólubláir geislar frá sól eða ljósa-
lömpum, loftkæling, streita, áhrif sindurefna og loftmeng-
unar, að ógleymdu tóbaki og áfengi,“ segir Undína.
Ýmsar aðferðir í boði
Árþúsundum saman hefur fólk leitast við að varðveita
æsku og fegurð. Á síðari áratugum hafa rannsóknir og þró-
unarstarf sem miða að því að viðhalda æskuljóma húðar-
innar veitt okkur nýja sýn inn í þau fræði sem fjalla um
varnir gegn öldrun. Undína segir að meðferðarúrræðum
við öldrun húðar sé skipt í þrjá flokka. „Í fyrsta lagi er
hægt að fá meðferð án róttækra aðgerða en þá er yfirborð
húðarinnar meðhöndlað með kremum og möskum, krist-
alslípun, burstun eða efnafræðilegum aðferðum. Í öðru
lagi er hægt að fá meðferð með róttækum aðgerðum en þá
er húðinni veitt mjög virk meðferð. Notaðar eru aðferðir
og tæki sem veita aðgang að dýpri lögum húðarinnar, þ.e.
Dermatude’s Meta Therapy, Dermaroller, Meso Therapy
og Micro Needling. Í þriðja lagi er hægt að fá það sem
flokkast undir að vera „medical“ meðferð. Þá veita sér-
fræðingar húðinni róttæka meðferð, t.d. með Botulin Toxin
sprautum, húðfyllingarefni, laser-meðferð, svokallaðri
augnlyftingu eða andlitslyftingu.“
Rannsóknir hafa sýnt að gróska í snyrtivörugeiranum
er mest í yngjandi úrræðum, bæði meðferð og efnum.
„Stærsti markhópurinn (25-75 ára) er mótfallinn „medical“
úrræðum. Hins vegar er þessi sami markhópur áhugasam-
ur um betri árangur en þann sem næst með meðferðum
án róttækra úrræða. Meta Therapy er einmitt lausnin sem
þessi hópur hefur beðið eftir,“ segir Undína.
Nýjustu tíðindin í snyrtigeiranum
Dermatude's Meta Therapy stendur fyrir Medical & Est-
hetical Tissue Activating Therapy og er aðferð til þess að
bæta og fegra húðina að innan sem og utan. „Þetta er full-
komin meðferð fyrir þann sem vill meira en hefðbundnar
húðmeðferðir. Meta Therapy felst í því að gerðar eru ör-
smáar ástungur á húð án minnsta sársauka. Náttúrlegar
varnir líkamans bregðast samstundist við og hefja fram-
leiðslu á kollageni og elastíni til að gera við „skaðann”.
Þessar sjálfvirku viðgerðir líkamans eru 100% náttúru-
legar og húðin endurnýjast innan frá. Við þetta verður
húðin þéttari og fær aftur stinnleika sem var farinn að
minnka, og greinilega sést að fínar línur og smáhrukkur
sléttast, húðholurnar grynnast, hringrásarferli örvast og
almennt ástand húðarinnar batnar. Meta Therapy hjálpar
til við að endurnýja það sem húðin hefur misst í tímans
rás,“ segir Undína.
Meta Therapy bætir og fegrar húðina bæði innan og
utan frá. Meðferðinni fylgja einnig virk efni, þ.e. svokölluð
sérstök fyllingarefni (Subjectables), sem gera það kleift að
framkvæma mjög sérhæfðar og sérmiðaðar meðferðir sem
hæfa viðkomandi húðgerð. „Þannig fást tvöföld áhrif gegn
öldrun húðarinnar vegna þess að ekki er eingöngu horft á
afleiðingarnar, heldur er fyrst og fremst ráðist gegn orsök-
unum,“ segir Undína.
Um tvennt að velja
Hægt er að velja á milli bætandi húðmeðferðar og yngj-
andi meðferðar á öllu andlitinu, hálsinum og/eða bring-
unni, eða þá meðferð á afmörkuðum svæðum eins og t.d.
á höndum eða einstökum línum og/eða hrukkum. Einnig
má blanda saman meðferðum svo bestum árangri sé náð.
„Fyrst eftir meðferðina getur borið á dálitlum roða, en
hann hverfur á örfáum klukkustundum. Hægt er að snúa
sér strax aftur að daglegum störfum og má nota andlits-
farða sólahring eftir meðferð,“ segir Undína.
Hún segir ráðlagt að taka átta skipta meðferð en einnig
sé hægt að taka stök skipti. Árangurinn verður þó meiri
með fullri meðferð. Full andlitsmeðferð byrjar með fjórum
vikulegum meðferðum. „Eftir fyrsta skiptið er meðferðin
endurtekin einu sinni í viku í þrjár vikur, og síðan fjórum
sinnum í röð á tveggja vikna fresti. Samtals verða þetta
átta skipti og heildartíminn er 12 vikur, tæpir 3 mánuðir
alls. Þegar tilætlaður árangur hefur náðst þarf að viðhalda
honum með því að endurtaka meðferðina með reglulegu
millibili. Nauðsynlegt er að styðja við meðferðina heima
með Dermatude kremum. Kremin hafa verið þróuð sér-
staklega fyrir fyllingarefnin sem notuð eru í meðferðinni
og innihalda sömu virku efnin.“
Meðferð á línum og hrukkum
Undína segir að Meta Therapy henti einnig mjög vel fyrir
sérstakar aðgerðir gegn línum og hrukkum, í viðbót við
heildarmeðferð. „Með sérstakri aðferð er húðvefurinn und-
ir þessu svæði örvaður. Við það fer bandvefur að myndast
sem fyllir upp húðvefinn innanfrá. Hér er að sjálfsögðu um
100% náttúrulegt ferli í húðinni að ræða.
Sjá nánar www.frcosmetics.is.
DermatuDe – meta therapy
Meðferð sem dregur úr öldrun húðarinnar
Dermatude er nýtt snyrtivörumerki í hæsta gæðaflokki. Dermatude „Meta Therapy“ er byltingarkennd
meðferð á íslenska snyrtimarkaðnum en hún hefur farið sigurför um allan heim.
Nú þegar eru fjölmargar snyrtistofur farnar að
bjóða upp á þessa einstöku Meta Therapy meðferð,
þær eru:
Aqua Spa, Strandgötu 14, 600 Akureyri, Sími: 461 4445
Snyrtistofan Ágústa,
Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík, sími: 552 9070
Bonita snyrtistofa,
Hæðasmára 6, 201 Kópavogi, sími: 578 4444
Snyrtistofan Cara,
Bæjarlind 1-3, 201 Kópavogi, sími: 554 7887
Carita snyrting,
Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, sími: 555 4250
Dekurstofan/Ný Ásýnd,
Kringlunni 8, 103 Reykjavík, sími: 568 0909 / 899 7020
Snyrtistofan Dögg ehf,
Smiðjuvegi 4, 200 Kópavogi, sími: 552 2333
Snyrtistofan Eva, Austurvegi 4, 800 Selfossi, sími: 482 3200
Gallerí útlit, Bæjarhrauni 6, 220 Hafnarfirði, sími: 555 1614
Snyrtistofan Gyðjan,
Skipholti 50d, 105 Reykjavík, sími: 553 5044
Snyrti,- nudd og fótaaðgerðastofan Líkami og sál,
Þverholti 11, 270 Mosfellsbæ, sími: 5666307
Snyrtistofan Jóna fótaaðgerða- og snyrtistofa,
Hamraborg 10, 200 Kópavogi, sími: 554 4414
Snyrtingar Margrétar,
Borgartúni, 8-16 Höfðatorgi, 105 Reykjavík, sími: 566 6100
Snyrti- og nuddstofan Paradís,
Laugarnesvegi 82, 105 Reykjavík, sími: 553 1330
Snyrtistofan Þema snyrti- og fótaðgerðastofa,
Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, sími: 555 2215