Fréttatíminn - 17.05.2013, Page 68
Í takt við tÍmann Eva LaufEy kjaran HErmannsdóttir
Fer á Beyoncé-tónleika í Köben
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er 24 ára Akurnesingur sem vakið hefur athygli fyrir skemmti-
legt blogg sitt um mat og matargerð. Fyrir jólin kemur út fyrsta matreiðslubók Evu en þangað til
hefur hún í nógu að snúast í námi í viðskiptafræði við HÍ og sem lausapenni hjá Gestgjafanum.
Staðalbúnaður
Ég held að segja megi að ég sé kvenleg, ég hef
mjög gaman af pilsum og kjólum og geng alltaf á
háum hælum. Mér finnst það langþægilegast og
ég kann illa við mig í flatbotna skóm. Á sumrin
starfa ég sem flugfreyja og það gerist stundum
þegar ég flýg til Ameríku að ég dett inn í eina og
tískubúð, svona þegar ég er búin með matvöru-
búðirnar. Þá versla ég mikið í Zöru og H&M en
hér heima versla ég stundum í Kúltúr. Svo finnst
mér íslensk hönnun alltaf mjög sjarmerandi. Ég
geng mikið með stór og litrík hálsmen og nota
líka litríka jakka til að poppa upp svört föt. Ann-
ars klæði ég mig bara eftir formi, stundum er ég
venjuleg en stundum vil ég skvísa mig upp.
Hugbúnaður
Það kemur alveg fyrir að maður bregði undir sig
betri fætinum og fari út með vinum í Reykjavík
en það er líka gaman að skemmta sér á Akra-
nesi. Það er æði þegar mikið er um að vera í
bænum því þá koma allir sem eru fluttir. Mér
finnst samt skemmtilegast að vera í matar-
boðum, að borða góðan mat og drekka gott vín
með vinum mínum. Þegar ég fer á bar panta ég
mér annað hvort gin & tónik eða rauðvín. Ég er
svona gellan með rauðvínstennur úti á lífinu. Ég
er léleg að horfa á sjónvarp en á þó nokkra þætti
sem ég verð að horfa á. Núna horfi ég mikið á
The Office og Mad Men. Svo er ég í bíóklúbbi
en við förum reyndar ekki oft í bíó, þetta endar
oft í spjalli og við gleymum að fara. Mér finnst
gaman að fara út að hlaupa og fara í æfingatíma,
spinning, tabata og slíkt. Ég geri það bara til að
mér líði vel því ég fer yfirleitt heim og baka köku
eða eitthvað álíka á eftir.
Vélbúnaður
Ég er ótrúlega lítið tæknitröll. Ég á góða tölvu,
Dell held ég, en ég kann rétt svo nóg á hana til
að geta bloggað og skrifað eitthvað í Word. Í
fyrra keypti ég mér iPhone og nota hann mikið.
Ég er virk á samfélagsmiðlum, Facebook, In-
stagram og Snapchat. Ég á svo skemmtilega vini
að það er hressandi að fá Snapchat frá þeim. Svo
þegar ég fer út að labba þá finnst mér nauðsyn-
legt að láta vita af því á Instagram.
Aukabúnaður
Ég elska að fara út að borða og ég eyði örugg-
lega mest í það. Það er bæði uppáhaldið mitt
og áhugamál að prófa nýja staði. Uppáhalds
staðirnir mínir eru Galito á Akranesi,
Grillmarkaðurinn og Fiskmarkaðurinn.
Eins og flestar stelpur á ég ágætis safn
af snyrtivörum. Ég hugsa vel um hárið
mitt og kaupi hárvörur hjá Svavari á
Senter og ég kaupi mikið af íslenskum
húðvörum. Mér finnst mjög gaman
að ferðast. Uppáhalds staðirnir mínir
eru Hvolsvöllur, við förum reglulega
þangað, og Washington, mig langar
að heimsækja hana aftur. Það er
glimrandi hugguleg borg. Í næstu
viku er ég að fara til Köben með bíó-
klúbbnum þar sem við ætlum meðal
annars að fara að sjá Beyoncé. Ég
hlakka mikið til.
Eva Laufey býr
á Akranesi en
ætlar að flytja
með kærast-
anum til Reykja-
víkur í haust.
Hún segir þó
að það verði
tímabundið og
stefnir á að búa
á Skaganum
í framtíðinni.
Ljósmynd/Hari
Lán og styrkir til tækninýjunga
Lán og styrkir til tækninýjunga
og umbóta í byggingariðnaði
Íbúðalánasjóður auglýsir til umsóknar lán og styrki til tækninýjunga og umbóta
í byggingariðnaði. Lán eða styrki má veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum
sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar
á byggingarkostnaði og viðhaldskostnaði íbúðarhúsnæðis, styttri byggingartíma
eða stuðlað með öðrum hætti að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði.
Rafræn umsóknarblöð er að finna á vefsíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is
Nánari upplýsingar veitir Helga Arngrímsdóttir hjá Íbúðalánasjóði
í síma 569 6900 og með tölvupósti helga@ils.is
Umsóknarfrestur er til 14. júní 2013
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 | www.ils.is
Stundum er erfitt að skipuleggja
líf fjölskyldunnar þegar dótt-
irin æfir handbolta, sonurinn
er í skátunum, foreldrarnir eru
í vaktavinnu, já og síðan eru
það öll þessi afmæli sem þarf
að mæta í. Cozi er skipulagsapp
sem öll fjölskyldan getur notað
saman. Þar deila fjölskyldumeð-
limir lykilorði og sjá allir sömu
upplýsingarnar í símanum sínum
eða í tölvunni.
Eitt það þægilegasta við þetta
app er að þar hafa allir aðgang að
innkaupalista heimilisins og geta
bætt við jafnóðum. Nú þarf pabb-
inn ekki lengur að hringja heim
þegar hann gerir helgarinnkaup-
in ef hann gleymdi innkaupamið-
anum. Hann einfaldlega skoðar í
appinu hvað vantar og strokar út
jafnóðum það sem hann kaupir.
Húsverkin er einnig hægt að
skipuleggja í Cozi. Þannig er
hægt að stilla appið þannig að
það minni dótturina á að fara út
með ruslið eða skila bókunum á
bókasafnið.
Ef það eru tveir eða fleiri
tæknivæddir í þinni fjölskyldu
eru allar líkur á að þetta app
gagnist þér og þínum. Cozi ein-
faldar lífið.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
appafEngur
Cozi einfaldar lífið
68 dægurmál Helgin 17.-19. maí 2013