Heimilisritið - 01.11.1944, Blaðsíða 32
Reyndar geri ég ráð fyrir að við
gætum grætt einar tuttugu þús-
undir, ef Mið-Orient verður ekki
farið að falla í fyrramálið".
„En heldurðu að Jethero lendi
ekki í klípu út af þessu?“ spurði
Patrick.
Símon Templar hristi höfuðið.
„Eg hefi óljósan grun um, að
Oates flíki því ekki þegar hann
losnar, að hann hafi verið á geð-
veikahæli, — sérstaklega þegar ég
er búinn að segja honum allt sem
ég veit um fjáröflunaraðferðir
hans — hann kærir sig nefnilega
ekki um að verða til athlægis".
Símon Templar hafði á réttu að
standa. Það er staðreynd, að
Wellington Oates skýrði engum
frá þriggja daga dvöl sinni hjá
geðveikralækninum Jethero.
E N D I R
Karamellur
Það er alls ekki eins mikill
vandi að búa til góðar karmellur,
eiiis og margir halda. I Heimilis-
almanaki Helgu Sigurðardóttur er
kennt að búa til súkkulaðikara-
mellur og fer uppskriftin hér á
eftir. Er miðað við 200 kára-
mellur, sem talið er að hafi kost-
að 1% eyri hver í okt. 1941.
2 desilítrar rjómi, 2 dl. mjólk,
4 dl. sykur, 2y2 dl. sýróp, 2l/z
matskeið kakaó.
Kakaó og sykri er blandað sam-
an í potti, rjómanum og mjólk-
inni er hrært út í og svo hitað.
Þegar sýður, er sírópið látið sam-
an við. Lögurinn soðinn við hæg-
an eld, þar til ólgar í pottinum.
Hræra verður í honum hér um bil
viðstöðulaust. Mun þurfa að
sjóða í 2—3 stundarfjórðunga.
Hellt á smurða plötu. Þegar hann
fer að storkna, er hann skorinn í
lengjur, og þær siðan skomar
þversum svo að úr verði ferkant-
aðir bitar á stærð við karamellur.
Ríði á plötunni, þar til hann er al-
veg kaldur. Vef ja má karmellunum
innan í allavega litan cellofan-
pappír. Sé karamellulögurinn soð-
inn lengur og settur á plötuna,
verður hann harður sem brjóst-
sykur. Þarf þá að höggva hann
í sundur, er það ágætur brjóst-
sykur á bragðið, en getur ekkí
verið fallegur í laginu.
30
HEIMILISRITIÐ