Heimilisritið - 01.03.1945, Qupperneq 23
Niels Finssn
verstu meðferð. Samherjar hans
í friðarhreyfingunni gerðu allt,
sem í þeirra vald’ stóð, til þess
að bjarga honum. Þeir tóku það
ráð að reyna að útvega honum
friðarverðlaun Nobels, í þeirri von
að þýzka stjórnin myndi leyfa
honum að fara til Noregs til
þess að sækja þau og gæti þann-
ig sloppið úr landi. Nazistar kom-
ust auðvitað fljótt að þessari
ráðagerð og beittu öllum sínum
áhrifum til þess að koma í veg
fyrir að Ossietzky fengi verðlaun-
in. Þeir höfðu jafnvel í hótunum
um að slíta stjórnmálasambandi
við Noreg. Hófst nú harður áróð-
ur á báða bóga, því_ að margir
mikilhæfir menn skoruðu á Stór-
þingið að veita Ossietzky verð-
launin. Knut Hamsun ritaði á
móti Ossietzky, en mikill fjöldi
þeirra er áður höfðu þegið
Nobelsverðlaunin, studdu mál
hins þýzka friðarsinna.
1 Stórþinginu voru skiptar
skoðanir um málið. Margir töldu
það ógætilegt að baka sér reiði
mikils stórveldis vegna eins
manns, en á hinn bóginn gætti
andúðar gegn nazistum og sam-
úðar með Ossietzky. Árið 1935
voru friðarverðlaunin ekki veitt
vegna togstreitunnar um Ossi-
etzky, en árið eftir hafðist það
fram, að hann hlaut verðlaunin
vegna einbeitts fylgis verka-
mannaflokksins.
Aðstaða Ossietzkys batnaði ekki
við þennan pólitíska sigur and-
nazista. Göring lét þegar leggja
hann á pínubekkinn, til þess að
þröngva honum til að afsala sér
verðlaununum. Hann lét ekki
bugast, en gat komið skeyti til
Oslo, þar sem hann lýsti yfir
því, að hann tæiri á móti verð-
laununum. Nazistar urðu óðir af
reiði og ættmenn Nobels í Svíþjóð
lýstu yfir því, að veitingin væri
ekki í anda Alfred Nobels.
Ossietzky fékk ekki leyfi til að
fara til Noregs, en var fluttur
á spítala. En heilsa hans var
þrotin, ef til vill vegna pynd-
Peningar Ossietzkys, 150,000
krónur voru lagðir í banka í
Oslo. En brátt fékk þýzka utan-
ríkisráðuneytið því til leiðar kom-
ið, að fjárhæðin var afhent Þjóð-
verjum. Norska stjórnin beygði
sig þannig af ótta við-þýzka stór-
veldið. Það kom sér líka vel fyr-
ir nazista að fá fjárhæðina, því
að þeir voru þá í óða önn að
undirbúa heimsókn þá, er þeir
gerðu Norðmönnum árið 1940.
HEIMILISRITIÐ
21