Heimilisritið - 01.03.1945, Blaðsíða 25
fremur en minkaði við það, því
að Arabar hafa unun af því að
prútta og pranga, þótt þeir hafi
ef til vill oft á tíðum sízt hag
af því.
„Hræðstu aldrei neitt, sonur
minn“, sagði hann. „Eg skal
gera þig ríkan. Eg skal gefa þér
heila hjörð af úlföldum". Enn
maldaði ég í móinn, og hann
lyfti fram lófanum sannfærandi
og taldi upp hjarðir geita og
ýmissa annarra húsdýra auk
margra dýrra jarðneskra muna.
Að lokum, eftir langar, hæ-
verskar samræður, sannfærði ég
hann um að hernaðaryfirvöldin
myndu ekki veita mér lausn frá
herþjónustu.
Eg varð mjög forviða, þegar
ofurstinn sendi boð eftir mér
daginn eftir og bað um skýr-
ingu á bænarskjali, sem honum
Sfohur
Heilræði.
Æskustund, sem áttuð þér,
ást sem hefur bilað
cg bók sem lánuð eitt sinn er,
aldrei verður skilað.
D.F.
Sáðmennirnir.
Upp er skorið, en engu er sáð,
allt er í varga ginum;
þeir, sem aldrei þekktu ráð,
þeir eiga að bjarga hinum.
Sigmundur úrsmiður
frá Akureyri.
hafði borist. Svo virðist sem
Abdul gamli hafi farið á fund
ofurstans og beðið hann um að
fá leyfi herstjórnarinnar til þess
að ég mætti hætta í hemum og
ganga sér í sonarstað. Þar sem
Abdul gamli var í raun og veru
einn af mestu valdamönnum
nærsveitanna og það gat verið
mikið undir afstöðu hans komið,
hversu auðveldlega okkur tækist
að sigrast á Þjóðverjum á þess-
um slóðum, var ofurstinn á báð-
um áttum. Það leit út fyrir að
hann héldi að ég hefði fengið
gamla manninn með brögðum til
þess að leggja fram þessa beiðni.
Með nokkmm erfiðismunum gat
ég skýrt hið sanna í málinu. En
upp frá því hef ég þó gætt þess
að leita ekki um of eftir fróð-
leik hjá framandi fólki, því að
ég gleymi aldrei Abdul gamla.
PLUTO
REIKISTJARNAN
PLUTO, níunda reikistjarnan í
sólkerfi okkar, var ekki uppgötv-
uð fyrr en nú fyrir örfáum ár-
um. Hún er lítið eitt stærri en
Merkúr, sem er minnsta reiki-
stjaman og liggur næst sólinni,
eða í 36 millj. miiua fjarlægð, en
Pluto, sem er fjærst, er 3.700
millj. mílur frá sól. Talið
er að Pluto muni nú sjást
frá jörðinni í eina öld, en svo
ekki aftur fyrr en eftir 3000 ár.
HEIMILISRITIÐ
23