Heimilisritið - 01.03.1945, Page 29

Heimilisritið - 01.03.1945, Page 29
og færð þér bjór, sem reynist ekki vera ýkja margar gráður undir suðumarki. Ennþá er allt tiltölulega kyrt í húsinu. — Nokkrir menn sitja við næsta borð og stara á þig freðn- um augum. Þeir virðast eiga erf- itt með að halda höfði. Að stund- arkorni liðnu stendur einn þeirra upp, slagar að borðinu til þín og spyr á hvern andskotann þú sért að glápa. Þú verður að vonum seinn til svars. Þá spyr hann þig hvort hann eigi að fletja út smettið á þér. Yfirþjónninn kemur nú og leið- ir maninn til sætis, eftir að hafa spurt þig hvort þú getir ekki ver- ið til friðs. Maðurinn situr nú kyrr þar sem hann er kominn, en send- ir þér tóninn nokkra stund. Loks verður hann leiður á því og fer að æla frami á borðið í tilbreyt- ingarskyni. Þolinmæði þín er á þrotum. Nú ætlar þú að ganga til hvílu og eiga rólega nótt. En herbergishurðin er þá lok- uð að innanverðu. Þú bankar. Lágt hvískur og niðurbælt fliss heyrist að innanverðu, annars ekkert svar. Eftir svo sem hálftíma árang- urslausar tilraunir til að komast inn í þitt eigið herbergi, ferðu nið- ur aftur til að hitta yfirþjóninn. — Klukkan er nú orðin hálf tólf og mikið farið að lifna yfir hús- inu, grammófóngarg, söngur óg gleðilæti heyrast hvaðnæfa. Hurð opnast á ganginum, um leið og þú ferð framhjá, miðaldra kven- maður kemur út á fleygiferð rekst á þig og þið veltið um koll og þú ofan á. Hún hljóðar hástöfum á meðan þið eruð að greiða ykkur í sundur. Aftur opnast hurðin og digur dólgur kenuur út, þegar þú ert að losa aðra hendina undan hálsin- um á kvensunni. Hann viðhefur ekki mörg orð, en þrífur til þín froðufellandi. — Þegar þú nærð tali af yfirþjón- inum, ertu kominn með fyrsta flokks glóðarauga. Þú segir þínar farir ekki sléttar, hvað herberg- inu viðvíkur. Hann lítur á þig rannsóknar- og umvöndunaraug- um. — Ykkur hefur sinnast, sé ég er, segir hann. Ekki get ég að því gert þó að þér látið reka yð- ur út úr yðar eigin herbergi! Það er hrópað á hann úr mörg- um stöðum í senn. Veitingastofan er sneisafull og mikið um dýrðir. Þú átt lögg á flösku úti í tjaldi, og nú eða aldrei er þér þörf á hressingu. Þegar þú kemur aftur, tíu mínútum síðar, er búið að loka hóteiinu. Þú berð kurteis- lega að dyrum. Öll byggingin dunar af dansi og söng. Einhver rígmontin blók kemur í gæctina og segist vera umsjónarmaður- inn. Hann hlustar á þig andartak og skellir svo í lás við nefið á þér. Það er komið miðnætti og húð- arrigning. Þú skreiðist út í tjald- ið aftur og sötrar það sem eftir er í flöskunni. Þú ert einn í tjald- HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.