Heimilisritið - 01.03.1945, Blaðsíða 37
Stjörnuspáin *
Hvenær er fæðingardagur þinn? Ef
hann er á tímabilinu 21. marz—20. apríl
(báðir dagar meðtaldir), þá ertu í heim-
inn borinn undir stjörnumerki hrútsins.
Hér geturðu lesið, hvað stjörnuspá-
mennirnir hafa að segja þeim, sem
fæðst hafa á þessum tíma árs.
* 21. marz -- 20.
ARIS eða hrúturinn er ráð-
andi stjörnumerki á tímabilinu
frá 21. marz til 20. apríl að
báðum dögum meðtöldum. Þeir,
sem fæddir eru undir þessu
stjömumerki, ættu alls ekki að
vinna undir stjórn annarra. Til
þess að öðlast sem mesta gleði
og lífshamingju, ættir þú, sem
fædd(ur), ert undir áhrifum
þessa merkis, að vinna sem mest
sjálfstætt, þar eð þú hefur for-
ustu hæfileika og jafnvel gæti
það komið fyrir, að þú yrðir
brautryðjandi. Á stundu sigurs-
ins munt þú hljóta aðdáun
allra, því að þú hefur þá unnið
ódauðlegt þrekvirki.
Á hinn bóginn verður þú að
temja þér sjálfsstjóm, ef þú átt að
ná árangri og ljuka við það, sem
þú hefur tekið þér fyrir hendur
apríl *
að framkvæma. Hin óþrjótandi
ákefð og viljaþmk, sem þú ert
gædd(ur) og allir dá, er sterkasta
einkenni eðlis þíns, en þú verður
að læra að hafa hemil á ákefð
þinni, annars hætiir þér við að
fást við of mörg verkefni í einu,
hætta við hálfunnið verk og
byrja á nýju.
Ef til vill veitist þér erfitt,
að þiggja heilræöi frá vinum
þínum, því að þór finnst allt
rétt hjá sjálfri(um) þér og trúir
aldrei fyr en þú tekur á. Gættu
þess að hreyta ekki ónotum í
þá, sem vilja þér vel. Það borgar
sig aldrei.
Þér verður ahhei vant hug-
rekkis og dirfsku, og harðleik-
in(n) getur þú verið í meira
lagi. Þess vegna ert þú oft sú
(sá) fyrsta(i) til að ríða á
HEIMILISRITIÐ
35