Heimilisritið - 01.03.1945, Side 55
oftast er hægt að kaupa þau þar, ef
verið er á verði, þegar þær fá
sendingar, en treglega mun
ganga að fá þær til að taka við
föstum áskrifendum að þeim.
SVAK TIL „ÖHAMINGJU-
SAMBAK“
Við fyrri spurningunni hef
ég litlu við að bæta. Þú svarar
henni sjálf fyrir þitt leyti og ég
er ekki frá því að ýmsar fleiri
séu á sama máli, nema hvað það
snerti að álíta það dýrseðli, þótt
ungur maður taki unga stúlku í
fang sér og kyssi hana, án þess
að hafa fengið munnlegt leyfi til
þess fyrst. Karlmenn spyrja víst
sjaldan munnlega um leyfi í slík-
um efnum, nema þeir séu frem-
ur lítið veraldarvanir.
Hvað síðari spurninguna snertir
get ég ómögulega sagt um, hvort
hann er hrifinn af þér eða ekki,
eftir þeim upplýsingum, sem þú
gefur. Líkindi benda þó til þess,
fyrst hann er hættur að vera
með hinni. Hver er sjálfum sér
næstur. Ef þú ert hrifin af hon-
um þá skaltu reyna að halda í
hann, því að í stríði og ást eru
öll brögð leyfileg, að því er talið
hefur verið.. Þú skalt heldur ekki
vera neitt hrædd við að gefa hon-
um óbeinlínis í skyn tilfinningar
þínar því að vissulega er það ekki
sjaldnar kvenmaðurinn, sem nær
í karlmanninn, heldur en karl-
maðurinn í kvenmanninn.
ÁST OG VANDRÆÐI
Sp: Eg ætla að biðja þig
stórrar bónar. Svo er mál með
vexti, að ég mæti svo að segja
daglega stúlku, sem mér lízt vel
á. Hún er ekki sérlega fríð en
fremur vel vaxin. Við brosum
hvort til annars — pg hún
roðnar stundum um leið. En
ég er feiminn, og það verður
aldrei úr því að við tölum
saman. Eg hef ekki orðið var
við hana á þeim samkomum, sem
ég fer á, og ég veit engin deili
á henni. Heldurðu að hún sé
hrifin af mér? Ef svo er, hvern-
ig á ég þá að kynnast henni?
Aðdáandi Heimilisritsins í Vest-
mannaeyjum
Sv: Ja, nú er ég hissa. Venju-
lega þekkjast allir í kaupstöð-
um eins og Vestmannaeyjum.
Eg er ekki í vafa um, að þið
eruð mjög alvarlega skotin
hvort í öðru, þótt ekki sé víst
að þið verðið það þegar þið
hafið kynnst. Ekkert algilt ráð
er til, sem hægt er að fara eftir
ef karlmaður ætlar að kynnast
stúlku, sem honum lízt vel á.
Ef þú ert mjög feiminn geturðu
varla skapað þér eittlivert til-
efni til að ávarpa hana og fund-
ið með því móti tækifæri til að
kynnast henni nánar. Reyndu að
komast eftir því hvar hún vinn-
ur, t. d. með því að fylgja í
humátt á eftir henni, þegar hún
fer í vinnuna. Þá hlýtur þú að
geta komist í samband við ein-
hvem, sem þekkir ykkur bæði
og getur komið ykkur í kunn-
ingsskap.
MÁLFRÆÐISPUBNING
Sp: Mig langar til að spyrja
þig, Eva Adams, hvort er rétt-
ara að segja: „Eg ætla á bíó“
eða „ég ætla í bíó“.
Krákus.
Sv: það er réttara að segja:
„Eg ætla í bíó“ eða „ég ætla í
kvikmyndahús".
Eva Adams.
HEIMILISRITIÐ
53