Heimilisritið - 01.03.1945, Side 62
„Jæja, þér eruð frá B.B.C.-út-
varpinu, er það ekki?“.
Jarvis hneigði sig aftur.
„Það er þess vegna, sem ég
hefði löngun til að fá að segja
nokkur orð við ungu frúna“,
sagði hann. „Eins og þér sögðu-
sjálfar, frú, þá hefur hún allt
til að bera sem tryggir vin-
sældir söngvara. Eg er sem
stendur í fríi, en þegar ég kem
til London innan skamms og
fer að sinna störfum mínum
þar, myndi mér verða það
mikil ánægja að sjá yður, frú
Foster, aftur hvenær sem þér
óskið. Ef þér mynduð vilja
syngja í útvarpið, þá þurfið
þér ekki annað en að láta mig
vita“.
Anna brosti.
„Eg býst nú ekki við því að
ég verði nokkurntíma útvarps-
söngkona", sagð hún. „En ég
er samt mjög þakklát fyrir
þann heiður sem þér sýnið mér
með þessu tilboði".
„Það er sízt að þakka“, sagði
hann og lyfti annarri hendinni
brosandi. „En munið þér það,
að þetta er sagt í fullri alvöru,
frú Foster. Og ég er ekki viss
um að það væri rétt af yður
að neita almenningi í Bretlandi
Um þá ánægju að heyra söng
yðar. Þegar einhver er þeim
náðargáfum gæddur sem þér,
frú, má hann ekki neita öðrum
um að njóta ávaxta þeirra. Það
er hálft í hverju skylda yðar að
syngja opinberlega, fyrst þér
hafið svona dásamlega rödd“.
Hann hneigði sig kurteis-
lega fyrir þeim enn einu sinni og
gekk í burtu. Matilda einblíndi
á Önnu.
„Svo þú kærir þig ekki um
að verða útvarpsstjarna?“
Anna hló. „O, sei, sei, nei“,
svaraði hún og leit upp á svið-
ið. „En við megum víst ekki tala
svona mikið. Það er töframaður
að sýna listir sínar þama, eins
og þú sérð“.
ELLEFTI KAPlTULI
MARTIN ók beinustu leið til
Regency-leikhússins, þegar hann
kom til London morguninn eft-
ir. Zena var ekki komin, og
dyravörðurinn sagði honum að
hún væri ekki væntanleg fyr
en eftir hádegi.
Martin þakkaði upplýsingarn-
ar og gekk aftur út í ieigubíl-
inn.
Hann ákvað að fara heim til
Zenu. Hann hafði ávallt verið
velkominn þangað. Honum
fannst hann ekki geta slæpst
um borgina allan morguninn og
beðið eftir því að hún lcæmi í
leikhúsið.
Auk þess var hann ekki far-
inn að matast neitt um morg-
uninn. Sennilega myndi Zena
bjóða honum eitthvað og þau
gætu svo spjallað saman yfir
því.
Framhald í næsta hefti
60
HEIMILISRITIÐ