Heimilisritið - 01.07.1945, Page 7
og spurði, hvort hann mætti
fylgja henni heim.
— Núna? spurði hún undrandi,
er hin töluðu um það sín á milli,
hvert halda skyldi. Pendleton
stakk hendinni í vasann, og
Toni áttaði sig.
— Eg hef annars hálfgerðan
höfuðverk, svo að ég vil helzt
fara rakleiðis heim, sagði hún
og greip hönd hans. Hún hafði
ekki hugsað um peninga, síðan
hún var með Joe. — Veðrið er
svo fallegt, að við skulum held-
ur ganga.
— Má bjóða yður eitt glas af
einhverju eða bolla af kaffi?
spurði hann, er þau gengu ein
eftir strætinu.
Oft hafði hún borðað heitar
pylsur og drukkið kaffi með
Joe, vorið yndislega, sem þau
kynntust. — Eg vildi gjarnan
kaffi, sagði hún.
— Fínna gæti.það verið, sagði
hann afsakandi, er þau voru
setzt í litlu veitingahúsi við
borð, sem þakið var grófum, blá-
köflóttum dúk.
— Það er nógu gott, svaraði
hún.
— Eg hef verið svo utan við
mig í allt kvöld. Frú Carter hef-
ur reyndar verið mér góð. Eg
hef teiknað dálítið fyrir hana og
hún reynir að aðstoða mig með
ráðum og dáð.
Hann hætti eins snögglega og
hann byrjaði, og Toni virti hann
forvitnislega fyrir sér. Hann var
afundinn, en þó óframfærinn,
drambsamur en óhamingjusam-
ur. Joe hafði heldur aldrei jafn-
að sig við annað fólk.
— Eg er að hugsa um að
byggja hús, sagði hún svo. Eg á
dóttur og hún hefur ekki gott af
að búa í borginni. Viljið þér
teikna hús fyrir mig?
Hann hló andartak. — Já, auð-
vitað! Hafið þér lóð?
Eg, sem á 1000 hektara bú-
garð, sem ég mun aldrei sjá
framar, hugsaði hún. — Faðir
minn á fasteignir, sagði hún. —
Hann heitir Arthur Harkness.
Henni varð litið á Pendleton.
Hann var svo afundinn, að hún
fyrtist við.
— Látið þér mig fá nafnspjald-
ið yðar, svo leita ég kanski til
yðar síðar, sagði hún kuldalega.
— Nú vil ég helst fara heim.
— Þú vilt þó víst ekki búa
úti í sveit, Toni, sagði faðir henn-
ar daginn eftir. Hann virti hana
gaumgæfilega fyrir sér. — Ætl-
arðu að fara að gifta þig? Hún
svaraði engu, og þau settust nið-
ur og fóru að athuga uppdrátt.
Síðar um daginn keypti hún
fimm hektara landareign, með
bunandi læk og stóru álmtré.
Morguninn eftir símaði hún
til Pendletons, sem kom um
HEIMILISRITIÐ
5