Heimilisritið - 01.07.1945, Page 9
— Ágætt, en hvar er borðstof-
an? Auðkennið hana með spýtu.
Eg er nefnilega með hádegis-
verðinn með mér.
Hann horfði á hana þegjandi,
meðan hún var að tína upp úr
körfunni, sem var full af góð-
gæti. Hendur hennar voru
hvorki skreyttar hringum né
naglalakki. Hann andvarpaði og
lagðist endilangur í grasið.
Scott var búinn að útskýra
uppdrættina fyrir Toni í nærri
klukkutíma. Hún studdist fram
á borðið, þegar hún spurði allt
í einu:
— Hvers vegna nota húsa-
meistarar hvítt blek?
Hann sleppti uppdrættinum
óðara, og hann vafðist saman
svo að small í. — Hafið þér ann-
ars hlustað nokkuð á mig?
Hvernig líkar yður uppdráttur-
inn?
— Auðvitað vel. En.... það er
víst engin þörf að flýta sér svona
mikið? Getið þér ekki gert fleiri
uppdrætti?
— Nei, ekki þó að ég væri all-
ur af vilja gerður! Hann reis á
fætur, svo stóllinn valt um koll.
— Þetta er það unaðslegasta
hús, sem ég hef nokkurn tíma
teiknað.....
Toni stóð einnig upp og lagði
höndina á handlegg hans.
— Eg er svo heimsk, sagði
hún aumingjaleg. — Getum við
ekki ekið upp eftir á morgun,
svo að þér getið útskýrt fyrir
mér teikninguna þar?
— Nei, á laugardögum og
sunnudögum er ég alltaf heima
með börnunum mínum, svaraði
hann.
— Ó, ég vissi ekki, að þér ætt-
uð börn. Hvað eru þau mörg?
— Seytján, svaraði hann og
hló að undrunarsvip henar.
— Tvö, leiðrétti hann svo.
Peggy er sex ára og Tom f jögra.
En ef þér viljið fara á laugar-
daginn gætum við ef til vill tek-
ið þau með. Joanna og barr^óstr-
an gætu líka komið með yður.
— Já, það væri skemmtilegt.
En verður ekki konan yðar með
líka?
----Konan mín er dáin, svar-
aði hann stuttlega.
— Ó, það er sorglegt að heyra,
sagði Toni lágt. Hún leit niður
fyrir sig með grátstaf í kverk-
unum, en varð jafnframt léttara
niðri fyrir, og roði kom fram í
kinnar hennar.
Dyrabjöllunni var hringt, og
þjónustustúlkan opnaði fyrir
Freddy Warren. Þeir Pendleton
heilsuðust, og Freddy spurði
strax um teikninguna af húsinu.
Þetta er nú nokkuð, sem vert
er um að tala, sagði hann hrif-
inn. — Einkum lízt mér vel á
útlit þaksins.
HEIMILISRITIÐ
7