Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 15
Göturnar eru mjóar á Grip og gróÓurmold þui nœr engin.
Tilgangurinn með því að taka
upp þessa aldagömlu tilvitnun
eftir Gunnerus biskupi, er sá, að
gefa lesendunum eins konar
hugmynd um, hvers konar stað-
ur þetta er, nefnilega örlítill
hólmi í úthafinu, svo umkringd-
ur brimi og boðum, að manni
finnst ótrúlegt að þar geti ver-
ið mannabyggð — sem hefur þó
haldizt í þúsundir ára.
Á Grip er enginn jarðvegur,
ekki svo mikið sem til að hylja
hina dauðu. Væri þar til fótbolti,
myndi hann fljótlega velta í sjó-
inn, eins og hver annar óþarfur
og ofaukinn hlutur. Höfn er þar
engin. í vestanátt liggja stærri
vélbátarnir ruggandi við land-
festar. í hléi við hólmann. Vest-
anmegin er lítiil hafnargarður,
sem hefur revnst of lágur, og
innan við hann er lítill pollur,
sem er þó engan veginn öruggt
lægi fyrir minni bátana. Einu
sinni, í afspyrnuroki bárust
bátarnir langt upp á land. næst-
um til kirkjunnar, sem er mið-
depill eyjarinnar. En um kirkj-
una verður rætt nánar síðar í
þessari grein. Nú á samt að fara
HEIMILISRITIÐ
13