Heimilisritið - 01.07.1945, Qupperneq 19
þessu raka eyjaloftslagi? Er ég
minntist á þetta við gamlan eyj-
arskeggja, svaraði hann með
vorkunnsemi í röddinni:
„Sérðu það ekki maður, að við-
urinn er gegnsýrður af salti!“
Og þannig er þessu varið.
Særokið nær þangað óhindrað,
og eftir eina óveðursnótt eru all-
ir gluggar gráir af salti. Og sé
vel aðgætt inni í kirkjunni, sést
að saltið hefur síazt gegnum
veggina og myndar þunnt lag
innan á þeim.
ÞAÐ er eitt vandamál, sem
Gripverjar eiga sífellt við að
stríða, og það er að afla vatns-
ins. Ekki er hægt að safna regn-
vatni, svo nokkru nemi, annars
staðar en af húsaþökunum, enda
eru þau notuð þannig til hins
ýtrasta, í sambandi við hugvits-
samleg leiðslukerfi og vatns-
geyma einstaklinga. Þetta virðist
í fljótu bragði ekki svo erfitt úr-
lausnar, en ég komst að því, er
kaupmaðurinn rétti mér glas af
vatni 'Við miðdegisverðarborðið,
að það getur verið erfiðleikum
bundið, þrátt fyrir það. „Vatnið
hér í húsinu er ekki meira en svo
laust við að vera farið að spill-
ast“, sagði hann. „Vatnið var
gott, meðan þakið var nýtt. En
nú er þakið farið að verða mosa-
vaxið, og þér finnið víst mosa-
bragðið af vatninu“.
HEIMILISRITIÐ
Það hlýtur að vera skemmti-
legt fyrir börn að eiga heima á
Grip. Að vísu er ekki hægt að
renna sér þar á sleðum eða skíð-
um, en allstaðar má finna furðu
mikla tilbreytingu, jafnvel á
eyðilegum hólma. Mér dettur í
hug nokkuð, sem ég hef lesið um
uppeldi Eskimóadrengsins. Þeg-
ar hann er orðinn svo vaxinn,
að hann getur farið að fást við
verkfæri eða áhöld, fær hann í
hendur verkfæri, sem eru alveg
eins að gerð og þau, sem full-
orðna fólkið notar, aðeins miklu
minni. Og þau eru höfð eftir því
stærri, sem drengnum fer fram
að stærð og styrkleika. Og þegar
hann er fullvaxinn og fer að
stunda veiðar, er hann þegar
þaulæfður í öllu, er þar að lýtur,
og fær um að sjá um sig sjálfur,
án aðstoðar annarra. Eitthvað
svipað mun þessu vera háttað á
Grip. Uppáhaldsleikvöllur barn-
anna er vogurinn meðfram sjó-
búðinni, og skemmtilegasta leik-
fangið er báturinn. Og þessi leik-
föng eru smíðuð sem reglulegir
bátar. Ekki einhver óskapnaður,
sem er klístrað saman í leik-
fangaverksmiðju, af fólki, sem
aldrei hefpr tekið í ár. Þessir
bátar bæði sigla og láta að
stjórn, alveg eins og bátar hinna
fullorðnu.
Á þessum vogi er lægi fyrir
árabátana. Eyjarskeggar eru
17