Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 27

Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 27
Dr. Bayon skýrir frá því, að í slíku dái geti Indíánar lýst bæj- um og stöðum, sem víst er, að þeir hafi aldrei augum litið....“ ,yJá, nú veit ég“, greip ég fram í, „það er yagé. Margir caucher- oskynblendinganna, sem reika um skógana og safna gúmmí, eru ofurseldir nautn þess“. „Einmitt. Þetta er seyði, unn- ið úr safa yagéplöntunnar“, svar- aði Nymanns og kinkaði kolli. „Yagé er vafningsjurt, eins og þér máske vitið, sem vex þar sem skógurinn er þéttastur og óheilnæmastur. Til þess að ganga úr skugga um áhrif plöntunn- ar, bauðst Morales ofursti, sem var yfirmaður næsta herum- dæmis, til þess að reyna lyfið á sjálfum sér, og tók inn stóran skammt af því. Meðan hann var meðvitundarlaus, fékk hann vitneskju um, að faðir hans var dáinn, og að systir hans, sem bjó á öðru landshorni, var hættu- lega veik. Hvorttveggja reyndist síðar rétt. Bayon nefndi lyfið telepatina, og tók með sér birgðir af því til New York. Ef til vill hefur seyðið dofnað, eða Indí- ánalæknarnir leynt hann ein- hverju um tilbúning lyfsins. Að minnsta kosti misheppnuðust tilraunir hans í New York ger- samlega, og leyndardómur frum- skógarins e.r ennþá óráðinn“. „Og nú er það áform yðar að ráða þessa frummskógagátu?" spurði ég. „Eg ætla að reyna það, ef þér viljið hjálpa mér til þess“, svar- að læknirinn. Eg skýrði honum frá því, að Carigona-Indíánarnir væru ekki lömb að leika við, þeir væru hausaveiðarar, og legðu mikla stund á að safna höfðum hvítra manna. En hann lét engan bil- bug á sér finna. Okkur kom sam- an um, að bezt væri að fara til Rio Guivera. Þar búa nokkurn- veginn siðaðir Carigonar — þeir geta séð hvítan mann, án þess að fara strax að ráðgast um, á hvern hátt þeir geti náð í höfuð hans til minningar um heim- sóknina". „Þér verðið að lofa mér því, að gæta mannsins míns dyggi- lega“, sagði frú Nymanns og sendi mér svo hrífandi augnatil- lit, að ég fékk andköf. „Þér getið verið alveg róleg, frú“, fullyrti ég. „Eg þekki land- ið, og þér skuluð fá hann aftur heilan á húfi, eins og þegar hann fer frá yður“. En um leið hugsaði ég með sjálfum mér: Það væri víst meiri þörf á, að ég yrði hér eft- ir, og liti eftir þér, indæla, litla brúða, því að svarta óhræsið hérna lítur út eins og kyrki- slanga, sem situr um að gleypa í sig geitarkiðling. HEIMILISRITIÐ 25

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.