Heimilisritið - 01.07.1945, Page 29

Heimilisritið - 01.07.1945, Page 29
I Eg sagði ekkert, en hugsaði sitt af hverju með sjálfum mér. Nymanns var ótortrygginn. Eng- um, sem bæri nokkurt skyn- bragð á veröldina kæmi til hug- ar að láta unga og yndislega konu vera eina í slíkum stað og Buenaventura, í félagsskap með samvizkulausum fanti eins og dr. Alvarez. Mér kom þetta að vísu ekki við, en mér fannst Ny- manns farast slysalega; það væri í meira lagi súrt í broti, að missa svo indæla konu. En eftir því sem ég hugsaði meira um þetta, því ljósara varð mér, að * sá myndi verða árangurinn af för okkar. VIÐ héldum lengra og lengra inn í skógana, og loks fundum við ættstofn, sem hafði á að skipa „lækni“, er vissi deili á yagélyfinu. Það mátti varla seinna vera, því að báðir vorum við hálfdauðir úr mýraköldu. Kassagava varð að þjarka langa stund við Indíánalækninn, áður en hann fékkst til að kenna Ny- manns aðferðir sínar. Síðan sneri Nymanns sér að því af miklum áhuga, að athuga áhrif yagéseyðisins á Indíánana, en ég hafði nóg að gera, að reyna að vinna bug á mýraköldunni. „Mér virðist áhrif lyfsins ekki vera eins og Bayon lýsti þeim“, sagði Nymanns og hristi höfuð- ið. „Að vísu sjást nokkur ein- kenni — æðisköst og dásvefn. En ég hef ekki séð nein merki f jarskynjunar. Reyndar eru sjúklingarnir með óráðshjal, og Kassagava hefur þýtt hvert orð, sem þeir segja, en ég hef ekki orðið var við neitt óvanalegt“. „Væri ekki bezt, að ég tæki það inn?“ sagði ég. „Þér eruð ekki hress“, svaraði Nymanns.« „Það er bara lítilsháttar mýra- kalda“, svaraði ég. „Hver veit, nema yagéseyðið lækni mig af henni“. Nymanns hugsaði sig um. „Eiginlega ætti ég sjálfur....“ sagði hann. „En ef þér verðið meðvitund- arlaus, getið þér ekki gert at- huganir um, hvað fyrir yður kemur“, mótmælti ég. „Reynið það heldur á mér“. EFTIR nokkurt umtal féllst Nymanns á þetta. Eg skyldi taka inn yagé, og Nymanns athuga áhrif þess á mig. Indíánalækn- irinn var sóttur, og ég lagðist fyrir á férðadýnunni, og tók inn vænan skammt. Meðalið var beiskt, mér fannst hálsinn kipr- ast saman, og ég átti erfitt með að draga andann. Skömmu síðar fann ég til svima, og að einu leyti hafði Bayon þó rétt fyrir sér: Allt fékk á sig bláan litblæ, HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.