Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 31
yður aftur“,. sagði hann. „Yagé
er að minnsta kosti áhrifamikið
svefnmeðal“.
„Urðuð þér nokkurs vísari?“
spurði ég, fullur eftirvæntingar.
„Sagði ég nokkuð?“
„Hreint ekki svo lítið“, svar-
aði hann. „En um það getum við
talað síðar. Eg mútaði Indíána-
lækninum til að segja frá því,
hvernig þeir búa til yagélyfið.
Það sem enn þarfnast úrlausnar,
þessu viðvíkjandi, má eins vinna
á rannsóknarstofunni“.
„Það þýðir, að við förum strax
af stað til baka?“
„Það er ástæðulaust að vera
hér lengur“, svaraði Nymanns.
Nú gat ég ekki varizt því að
iðrast þessa heimskulega uppá-
tækis. En sagan hafði haft sín
áhrif, og ef til vill gæti hún
orðið til góðs. Eg var líka eins
sannfærður um, að Alvarez
reyndi að klófesta frú Nymanns,
eins og ég hefði séð það sjálfur.
Við héldum heim á leið. Þótt
undarlegt sé, hirti Nymanns
ekkert um að flýta ferðinni. Eg
hefði vissulega haft hraðann á,
hefði eg verið í hans sporum.
En Nymanns fór sér að engu óðs-
lega, er við héldum sömu leiðina
og við höfðum komið.
Þegar við náðum járnbraut-
inni, sem lá til Buenaventura,
létum við Kassagava og hina
Indíánana tvo lausa úr þjónustu
okkar, seldum múldýrin og kom-
um farangrinum fyrir í flutn-
ingavagn.
„Það verður unaðslegt að
koma aftur til siðmenningarinn-
ar og fá sér bað“, sagði læknir-
inn.
„Og konan yðar verður áreið
anlega frá sér numin að sjá yður
aftur, heilan á húfi“.
„Það verður hún sjálfsagt“,
svaraði Nymanns og fleygði sér
á bekkinn. Hann sofnaði undir
eins.
ÞEGAR við komum til Buena-
ventura fórum við hvor sína leið,
Nymanns ók til Hótel Ameri-
cano.
Nokkrum dögum síðar hitti
ég Nymanns úti á götu.
„Er nokkurs staðar hægt að
fá sér ærlegt whisky í þessu
skúmaskoti?“ spurði læknirinn.
„Hjá Chicago-Tom“, svaraði
ég. „Það er eina veitingakráin
á landinu, þar sem maður getur
verið viss um, að fá ósvikið
whisky“.
Eg fylgdi honum þangað, og
innan stundar sátum við með
whiskyflöskuna milli okkar.
Læknirinn fékk sér vænan teyg.
„Jæja“, sagði hann um leið og
hann setti frá sér staupið. „Kon-
an mín var hér ekki þegar ég
kom. Hún skildi eftir bréf. Hún
er á leið til Parísar með Alvar-
C3
HEIMILISRITIÐ