Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 39
ég krefst að þér komið í
kring“.
Alec tæmdi koníaksglasið og
mælti:
„Það verður erfitt. En ég skal
gera þetta vegna þess að ég
elska hana“.
John svaraði: „Það vissi ég.
Annars hefði ég ekki komið með
þessa kröfu“. —
ALEC áleit í fyrstu að hlut-
verk hans væri ekki mjög erf-
itt. En að viku liðinni var hann
kominn á aðra skoðun.
Christie var í sjöunda himni
í hvert sinn er hún sá Alec.
Hann daðraði við aðrar stúlkur
þegar tækifæri gafst. En Christ-
ie sagði þá aðeins: „Þú varst
kendur og meintir ekkert með
þessu flangsi. Þú þarft ekkert
að afsaka þetta“.
Það var einnig árangurslaust
þó hann fengi kunningja sína
til að úthúða sér svo Christie
heyrði. Hún reiddist bara slef-
berunum og sagði, að vinir hans
væru ómerkilegir menn.
Alec sveik loforð sín við
Christie, aðeins til þess að
veikja trú hennar á ágæti hans.
Hann laug að henni. En alltaf
hafði Christie afsakanir honum
í vil.
Alec langaði til þess að hætta
þessum leik og segja henni
sannleikann — að hann væri
orðinn betri maður eftir að hafa
kynnst henni.
Nei. Það var of seint.
— Þau voru á heimleið úr
kvöldboði. Christip hafði ekki
látist sjá hina hneykslanlegu
framkomu hans um kvöldið. —
Alec bauð henni að koma heim
til sín og fá glas af víni, og hún
svaraði:
„Það væri gaman“.
Hann varð forviða yfir því, að
hún skyldi ekki fyrtast af þessu
tilboði. Það var komið fram á
nótt og hann bjó einn út af fyr-
ir sig. Herbergið hans var all-
fátæklegt: Skrifborð, stóll, reyk-
borð, legubekkur, hægindastóll
og skápur.
Christie settist í hægindastól
inn og mælti:
Ég er dauðþreytt. Skórnir eru
svo þröngir“.
Alec kraup og tók' af henni
skóna. Hún strauk hár hans á
meðan.
Þegar hann var staðinn á fæt-
ur sagði hann:
„Ég gleymdi cocktailnum“.
Þau sátu og supu á glösun-
um.
Hann lagði höndina á öxl
hennar og sagði:
„Það var gaman að fá þig líka
hingað heim til mín“.
Hann ætlaðist til þess að hún
skildi orðið „líka“ þannig, að
hún væri aðeins ein þeirra
HEIMILISRITIÐ
37'