Heimilisritið - 01.07.1945, Blaðsíða 44
á öllum flugvöllum í landinu
norðanverðu. Nægir það út af
fyrir sig til þess að þeir fari sig-
urför um Noreg?
S., sem er gamalkunnugur
fréttamaður hér, álítur alla Þjóð-
verja, karla, konur og börn, eðl-
isbundna manndrápara. Getur
verið. En ég tók eftir því í Tier-
garten í dag, að margir þeirra
miðluðu íkornunum og fuglun-
um af fátæklegum brauð-
skammti sínum.
Berlín, 2. maí 1940.
Chamberlain hefur tilkynnt
að Bretar hafi gefið upp allan
Noreg sunnanverðan og miðhlut-
ann, en það eru mikilvægustu
hlutar landsins. Chamberlain
viðurkenndi, að það var flug-
herinn þýzki, sem kom í veg
fyrir að Bretar gætu flutt skrið-
dreka og fallbyssur á land á
Aandalsnesi. En hvað var Chur-
chill þá að raupa 11. apríl? Og
hvað er um brezka flotann?
Afrek þýzka hersins að brjót-
ast um tvö hundruð mílna veg
um Austurdal og Guðbrandsdal
frá Osló til Þrándheims og halda
á meðan Þrándheimi með litlu
liði gegn árásum Bandamanna
að sunnan og norðan er áreiðan-
lega stórkostlegt. Og öll taka
Noregs er efalaust glæsilegt
hernaðarafrek, þó að gripið væri
til svívirðilegustu svika.
Berlín, 4. maí 1940.
Flugfloti Görings hefur leyst
fjögur lífsnauðsynleg hlutverk
í Noregi. í fyrsta lagi varði hann
skipaleiðina um Kattegat fyrir
brezkum herskipum og gerði
Þjóðverjum þannig kleift að
flytja um hana landher, fallbyss-
ur og skriðdreka eftir vild. í
öðru lagi varði hann brezka
flotanum eða fældi hann frá því
að ráðast á hinar nauðsynlegustu
hafnir, sem voru í höndum Þjóð-
verja, Stafanger, Björgvin og
Þrándheim. í þriðja lagi gerði
hann Bretum ófært, eins og
Chamberlain viðurkenndi, að
setja stórar fallbyssur og skrið-
dreka í land á höfnum þeim, er
þeir ré'ðust inn í til landgöngu.
í fjórða lagi auðveldaði hann
landher Þjóðverja framrásina
um torsótt land með því að láta
sprengjum og vélbyssuskothríð
rigna viðstöðulítið niður á stöðv-
ar óvinanna.
Með öðrum orðum, hann olli
aldahvörfum í baráttunni um
Norðursjó og nærliggjandi lönd.
Eg átti tal við kunningja minn
úr lögregluliðinu í dag. Hann
býst við, að innan fárra vikna
snúist styrjöldin upp í sprengju-
árásir á stórborgir, og jafnvel
gashernað. Eg er á sama máli.
Hitler vill ljúka ófriðnum í sum-
ar, ef hann getur. Geti hann það
ekki, þrátt fyrir alla sigra Þjóð-
42
HEIMILISRITIÐ