Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 46

Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 46
arinnar í gærkveldi til þess að sjá eyðileggingu þá, sem flug- flotinn olli í Póllandi. Myndin er kölluð Eldskímin. Sýnt er hispurslaust, hvernig pólskum þorpum og borgurn, einkum Varsjá, var gereytt. Sýningár- gestirnir, allt Þjóðverjar, horfðu á í dauðaþögn. í Wilhelmstrasse ná menn ekki upp í nefið á ’sér útaf A. P. frétt um það, að tveir þýzkir her- ir stefni til hollenzku landamær- anna, annar frá Bremen og hinn frá Diisseldorff. Berlín, 9. maí 1940. Hitler tilkynnir í dag, um leið og boðið er að láta lausa nokkra norska fanga; „Hákon Noregs- konungur og herforingjar hans hófu þennan ófrið við Þýzkaland gegn vilja þýzku þjóðarinnar og þýzku ríkisstjórnarinnar!“ Síðar. Fyrirsagnir blaðanna eru með ferlegasta móti í kvöld, og flytja allar þrumandi ásak- anir á Breta um að þeir ætli sér að vinna ofbeldisverk, einhvers staðar. „Bretar brugga ráð um að breiða ófriðinn út“, öskra þau. Berlín, 10. maí 1940. Höggið er riðið af í vesturátt. Þjóðverjar réðust inn í Holland, Belgíu og Luxemburg í dögun í morgun. Það er teningskast Hitl- ers um sigur nú eða aldrei. Sýni- lega var það rétt, að hann treyst- ist ekki að þola viðskiptastyrj- öldina. Því greiðir hann atlögu meðan herir hans hafa nægar birgðir og flugflotinn er Banda- mönnum yfirsterkari í lofti. Ekki get ég hælt mér af því, að ég ætti von á þessu. Satt að segja fór ég að sofa svefni hinna réttlátu eftir hið venjulega fréttaútvarp eftir miðnættið. Og ég vaknaði af værum blundi, þegar síminn hringdi kl. 7 í morgun. Það var ein af stúlkun- um í Ríkisútvarpinu. Hún sagði tíðindin. „Hvenær viljið þér komast í útvarpið?“ spurði hún. „Svo fljótt sem ég get“, svar- aði ég. „Ribbentrop heldur blaða- mannafund í ’utanríkisráðuneyt- inu klukkan átta“, sagði hún. „Sleppi honum“, svaraði ég. „Tilkynnið New York með hrað- skeyti til varðarins DJL, að ég útvarpi eftir klukkustund“. Það urðu raunar tvær stundir þangað til ég gat byrjað. Það tók tíma að klæðast og komast út til útvarpsstöðvarinnar og skrapa saman fréttirnar. Það var talsverð óró í Ríkisútvarp- inu, og nokkur stund leið áður en ég gat togað allar fréttatil- kynningarnar út úr þýzku starfs- mönnunum. Ritverðirnir voru viðstaddir sem betur fór, og •44 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.