Heimilisritið - 01.07.1945, Qupperneq 47
töfðu mig lítið, þeir hljóta að
hafa verið aðvaraðir um nóttina.
Eg mátti aðeins ekki í fréttum
mínum kalla tiltektir Þjóðverja
í Hollandi og Belgíu „innrás“.
Eg rauk upp, en ákvað þó, þar
sem ritvörðunum hafði á þrem
stöðum sézt yfir orðið innrás í
handritinu, að sætta mig við að
setja annars staðar „fóru inn“,
til þess að útvarpshlustendur 1
Bandaríkjunum þyrftu ekki að
missa af sögunni.
Síðar. Eg verð að segja, að Ber-
línarbúar taka með ró tíðindun-
um af þessari orustu, sem Hitler
segir að „háð sé um framtíð
þjóðarinnar í þúsund ár“. Eng-
ir þeirra hópuðust saman úti
fyrir Kanslarahöllinni eins og
venjulega, þegar miklir atburð-
ir gerast. Fáir ómökuðu sig til
að kaupa hádegisblöðin, sem
fluttu fréttirnar. Af einhverjum
ástæðum bannaði Göbbels auka-
blöð.
Þýzka tilkynningin, sem „rétt-
lætti“ þessa síðustu árás Hitlers,
var afhent sendiherrum Hol-
lands og Belgíu klukkan sex í
morgun, eða hálfri annarri
stundu eftir að þýzkur her hafði
ruðzt inn í hlutlaus lönd þeirra.
Þar held ég, að jafnvel Hitler
hafi sett nýtt met í ósvífni og
ódrengskap.
í tilkynningu, sem Ribben-
trop las fyrir fréttamönnunum
á blaðamannafundinum klukk-
an átta í morgun, er því haldið
fram, að Bretar og Frakkar hafi
verið í þann veginn að ráðast
á Þjóðverja í gegnum Niðurlönd,
og því hafi þeim verið nauðsyn
að senda sínar eigin hersveitir
„til þess að vernda hlutleysi
Belgíu og Hollands“. Þessi
heimskulega hræsni er „studd“
með fölsuðu „skjali“ frá yfir-
herstjórninni, sem hún staðhæfir
að sanni það, að Bandamanna-
her hafi verið í þann veginn að
ryðjast inn í Belgíu og Holland
með það fyrir augum að taka
Ruhr.
Það er augljóst, að þýzki her-
inn hefur ráðizt þarna á af öllu
afli sínu. Flugflotinn hefur all-
ur farið á stúfana og á nú sýni-
lega að neyta liðsmunar við
Bandamenn. Yfirherstjómin seg-
ir, að í dögun hafi flugflotinn
varpað sprengjum á flugvelli í
Hollandi, Belgíu og Frakklandi
alla leið suður til Lyon. Enn eru
það ný tíðindi, er tilkynning ein
segir, að margar hersveitir hafi
verið fluttar í lofti til ýmissa
flugvalla í Belgíu og Niðurlönd-
um. Þjóðverjar segjast hafa her-
tekið flugvellina og umhverfí
þeirra. Augljóst er, þó að rit-
vörðurinn vildi ekki leyfa mér
að segja það í dag, að þarna hafa
verið sendar niður þúsundir fall-
hlífarhermanna.
HEIMILISRITIÐ
45