Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 49

Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 49
að fremja. Jafnvel Þjóðverjum er þetta auðsæ ósannindi. Þarf að útvarpa einu sinni enn klukkan hálf fimm að morgni, en þá er klukkan í New York aðeins hálfellefu kvöldinu áður. Hef verið að síðan klukkan átta í gærkvöldi. Berlín, 12. maí 1940. Sunnudagur, og lítið um svefn. Yfirherstjórnin segir, að eftir tveggja daga orustur hafi verið unnið allt Norðaustur-Holland, austan við Suðursjó, brotizt gegnum fyrstu og aðra varnar- línu í miðju Hollandi og rofinn austurendi belgísku virkjalín- unnar fram með Albertsskurð- inum. Fyrir um það bil einu ári kom ég að skurðinum og sá, að Belgar höfðu víggirt hann með gryfjum. Þær voru líkastar geysimiklum skriðdrekagildrum, djúpar og með bröttum, grjót- hlöðnum börmum. Hafa Belgar ekki sprengt upp brýrnar? Þessi Berlínarsunnudagur er eins og allir aðrir, að minnsta kosti sjást þess engin merki, að Berlínarbúar séu mjög á nálum vegna orustunnar, sem „gerir út um framtíð þeirra um þúsund ár“. Kaffihúsum er boðið að loka klukkan tólf að ■ kvöldi í stað klukkan eitt, áður en loftárásir hefjast að nóttunni, og raunar hefur engin verið gerð enn. Dans hefur einnig verið bannaður fyrst um sinn. Útvarpið varaði við því í kvöld, að ef Þjóðverjum verði misþyrmt 1 Hollandi, séu „næg tækifæri til að endurgjalda það í sömu mynt hinum mörgu Hol- lendingum, sem búa í Þýzka- landi“. Berlín, 13. maí 1940. Furðuleg tíðindi! Fyrirsagnir blaðanna í kvöld klukkan fimm: „Liége fallin! Þýzkar landher- sveitir hrjótast í gegn og taka höndum saman við hersveitir loftflotans nálægt Rotterdam!“ Þýzkur foringi sagði mér í kvöld, að yfirherstjórnin væri sjálf undrandi yfir hraðanum, og það er engin furða. Hersveitir loftflotans voru fallhlífahermenn, • og þeim var varpað úr flugvél á ströndina nálægt Haag í byrjun herferðar- innar, fyrsta daginn. Það voru þessir menn, sem tóku hluta af Rotterdam (!), þar á meðal flug- völlinn, þó að þeir hefðu engar fallbyssur, en Hollendingar áttu að hafa nóg af þeim, því að fé skorti þá ekki. Hvernig þýzk landhersveit hefur brotizt þvert yfir suðurhluta Hollands allt til sjávar, vefst fyrir okkur hér að skilja. Það hlyti að hafa verið vélaherdeild, en í Hollandi eru tugir af ám og síkjum á þessari HEIMILISRITIÐ 47

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.