Heimilisritið - 01.07.1945, Side 50

Heimilisritið - 01.07.1945, Side 50
leið. Maður skyldi ætla, að Hol- lendingar myndu hafa sprengt brýrnar af þeim. „Hakakrossfáninn blaktir yfir ráðhúsinu í Liége“, segja fyrir- sagnir blaðanna í kvöld. Þýzki herinn, sem brauzt yfir Alberts- skurðinn hefur auðsjáanlega beygt af og nálgazt Liége úr norðvestri, en þar eru varnir hennar veikastar, því að Belgar hafa búizt við árásum úr gagn- stæðri átt. Erlendar útvarpsstöðvar halda fregnunum áfram um þýzkar fallhlífasveitir, sem koma niður víðs vegar um alla Belgíu og Holland og taka flugvelli og borgir. Hér fáum við ekkert að vita um þetta. Þetta er ný styrj- aldaraðferð, og það verður fróð- legt að sjá, hver áhrif hennar verða í langri og grimmri við- ureign, ef Þjóðverjum verður þá ekki gefinn einn auðfenginn sig- ur enn. Reynaud, forsætisráðherra Frakka, tilkynnti í gærkvöldi, að þýzkir fallhlífahermenn, sem finnast kynnu á bak við víglín- una í öðrum búingi en þrýzkra hermanna, yrðu skotnir tafar- laust. í kvöld var okkur sagt í Wilhelmstrásse, að verið væri að tilkynna Bandamönnum það, að fyrir hvern þýzkan fallhlífaher- mann drepinn, myndu Þjóðverj- ar drepa 'tíu franska fanga! Þægilega viðfelldið fólk, þessir Þjóðverjar. Þetta minnir á styrj- aldir fyrir einu til tveim þúsund- um ára. En vert er að muna, að þetta er aðeins ein af hinum nýju ógnunaraðferðum Hitlers. Tess sagði mér í símtali í gær- kvöldi, að Svissar kölluðu hvern vígfæran mann til vopna. Hve- nær kemur röðin að Sviss? Eg bað hana að panta far fyrir sig og barnið með fyrstu ferð heim. Hún vill ekki gera það, og ber það fyrir, að hún verði að sjá um skrifstofu mína í Genf, hún vilji ekki fara svo langt frá mér, og nú, þegar styrjöldin sé fyrir al- vöru byrjuð, vilji hún vera á- horfandi! Berlín, 14. maí 1940. Við erum öll hálfringluð af fréttunum í kvöld. Hollenzki herinn hefur gefizt upp eftir aðeins fimm daga or- ustur. Hvað varð um öll vatna- virkin, sem voru haldin óvinn- andi? Og hvað er að hernum, sem er þó hálf milljón manna? Einni stundu áður en við feng- um opinbera tilkynningu um þetta, var okkur sagt, að Rotter- dam væri fallin. „Rotterdam gafst upp við hin skelfilegu á- hrif af árásum þýzkra steypi- flugvéla og yfirvofandi skrið- drekaáhlaupum og bjargaðist þannig frá því að verða lögð í 48 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.