Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 51

Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 51
rústir“, segir í tilkynningunni. Aðferð Hitlers til þess að greiða her sínum götu með ógn- unum og hryðjuverkum er jafn- snjöll og hún er djöfulleg. Þjóðverjar staðhæfa í kvöld, að eftir að Liége var fallin, hafi þeir rofið aðra varnarlínu Belga norðvestur af Namur. Þeir hljóta að vera komnir rétt að Brussel. Skriðdrekar og flugvélar, eink- um flugvélar, ryðja brautina. Hvílík reginskyssa hjá Bretum og Frökkum að hafa vanrækt loftflota sína! Dálítið þreytandi, hvernig þýzka útvarpið tilkynnir hvern nýjan sigur. Útsending er stöðv- uð, lúðrar þeyttir, síðan er les-’ in tilkynningin, og svo er sung- inn í kór slagarinn „Til Eng- lands vér höldum“. Báðir þjóð- söngvarnir eru leiknir með frétt- um af stórsigrum. Berlín, 15. maí 1940. Fréttamenn og stjórnarerind- rekar gapa í orðlausri undrun. Yfirherstjórnin staðhæfir, að ^Þjóðverjar hafi brotizt í gegnum Maginot-línuna nálægt Sedon og yfir Maasfljótið, bæði við Se- dan og milli Namur og Givet, nokkru norðar. Hverjum, sem séð hefur Maasdalinn, djúpan og vaxinn þéttum skógi, hlýtur að finnast næsta ótrúlegt, að Þjóðverjar hafi komist yfir hann á svo stuttum tíma, hafi annars nokkur her verið til varnar á vesturbakka árinnar. En báðir aðilar tala um miklar skriðdrekaorustur fyrir vestan Maas. Flestir kunningjar mínir hafa gefið upp alla von. Ég geri það ekki enn. í ágústmánuði 1914 hljóta að hafa verið enn verri horfur fyrir París, þegar ekkert virtist myndi tálma för þýzka hersins til höfuðborgarinnar. — — Hernaðarráðunautar okkar vekja athygli á því, að höfuðor- ustan sé ekki hafin enn, og Þjóð- verjum hafi ekki enn lent sam- an við meginheri Breta og Frakka. Og enn hafa Belgar hálfa milljón manna undir vopn um. Víglína Bandamanna liggur í dag um það bil um Antwerpen, Namur og niður með Maas til Sedan, en Þjóðverjar eru komn- ir yfir ána á ýmsum stöðum. Vaxandi orðasveimur um það frá Róm, að ítalir muni ganga í lið með Þjóðverjum nú í viku- lokin, af því að svo lítur út, sem þeir muni sigra. Tess sím- aði til mín í dag frá Genf til þess að segja mér þetta. Ég lagði aftur að henni að fara með barn- ið, og loks virðist hún fús til þess. Hún og frú V. með tvö börn, ætla að fara um Frakk- land til Spánar. Frá Lissabon HEIMILISRITIÐ 49

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.