Heimilisritið - 01.07.1945, Side 55
Annað þurfa þeir einnig
að varast, sem getur orðið
þeim Þrándur í Götu á leið
þeirra til metorða og orðið til
að skapa þeim óvini — það er
hvað þeim er hætt við að beita
ofríki og yfirgangi. Gert er ráð
fyrir að þeir stjórni og séu
valdamenn, en í umgengni verða
þeir að temja sér kurteisi og
þýða framkomu, því að það má
aldrei gleyma því, að auðveld-
ara er að leiða en neyða. Með
því að sýna lipurð og kænsku
munu þeir geta haft sitt fram,
og vafalítið er það hið réttasta
og skynsamlegasta, sem þeir
leggja til málann^.
Alveg áreiðanlega hafa þess-
SKRÍTLUR
VAR HÚN HEILALAUS?
Eiginkonan: — Hvað skyldi annais
vera hægt að lifa lengi, án þess að hafa
heila?
Eiginmaðurinn: — Það kemur í ljós,
góða mín, vertu alveg róleg!
MISSKILDI HANN.
Ungi maðurinn: — Mig langar til að
giftast dóttur yðar.
Ríki maðurinn: — Hm. Drekkið þér
piltur minn?
Ungi maðurinn:: — Já, takk, en eig-
um við ekki að tala um hitt fyrst?
ir menn mjög mikla hæfileika
til að verða ríkir og voldugir
forvígismenn á sviðum stjórn-
mála, verzlunar og allskonar
atvinnumála.
Þeir munu naumast gera sig
seka um sviksemi í ástamálum
eða ótryggð gagnvart vinum
sínum. Þeir munu undantekn-
ingarlítið vera hamingjusamir í
hjónabandi og kunna að meta
gildi þess. Forðast ber þeim
hverskonar deilur, því að ef þeir
reiðast er hætl* við að þeir segi
meira en þeir meina og láti
meiðyrði og svívirðingar falla,.
sem þeir sjá eftir þegar þeim
er runnin reiðin.
FÉKK KJARKINN.
— Hugsaðu þér annað eins. Þegar þaui
voru komin að altarinu tók hann skyndi-
lega til fótanna.
— Nú, hann hefur misst kjarkinn.
— Nei, hann fékk hann aftur.
„NORMALT SJENÍ".
— Ég las nýlega, að öll sjení séu geð~
veik.
— Það hlýtur að vera vitleysa. Alveg
er ég normal“.
BEZTU BÆKURNAR.
Menntaskólakennarinn: „Hvaða bæk-
ur eru það, sem þér hafið mestar mæt-
ur á?“
Nemandinn: „Matreiðslubókin hennar
mömmu og tékkheftið hans pabba“.
HEIMILISRITIÐ
53