Heimilisritið - 01.07.1945, Side 57

Heimilisritið - 01.07.1945, Side 57
dálitla þögn, „að við getum ekki komizt hjá því að horfa á þenn- an fjárans krokketkappleik?“ „Það Mtur út fyrir að hann sé að skella á með rigningu“, svaraði Lesley. “Ég efast um að nokkuð verði úr kaþipleiknum. Og svo —“. „Og svo hvað?“ „Mig langar til að fara til for- lagaspámannsins“, svaraði Les- ley. Það var auðvelt að þekkja spátjaldið úr. Það var hátt með rauðum röndum og yfir dyrum þess stóð með stórum stöfum: HINN MIKLI SWAMI les í lófa og kristallskúlu — sér allt, veit allt. „Hæ!“ Horace Price, afgreiðslumað- urinn 1 skotæfingatjaldinu, stóð í tjalddyrunum og hrópaði hárri röddu til þeirra. Fámennt var þarna í nágrenninu, því að flestir höfðu farið að horfa á krokketkappleikinn. „Góði vinur!“ sagði hann. „Góða vinkona! Eg og konan mín höfum verið að svipast um eftir ykkur í allan dag. Er það satt? Ætlið þið að gifta ykkur?“ „Já, það er engin lygi“. ,Góði vinur“, sagði Price og tók hjartanlega í hendurnar á þeim. *„Lesley“, sagði Dick, „er gíf- urlega spennt að sjá - þennan fræga spámann. Er hann ekki til viðtals núna?“ „Jú það held ég áreiðanlega. Já, varla sakar að fá eitthvað að vita um hamingjuna, sem framundan ykkur er. En fyrst veriðið þið að þiggja eitthvað af mér. Hérna eru byssurnar. Nú reynið þið skotfimina!“ „Byssur?“ æpti Lesley. „Nei, 1 guðanabænum. Það vil ég helst ekki“. „Hvað vitleysa“, sagði Price, tók fram lítinn riffil og strauk skeftið vingjarlega. „Hérna er einn nettur, alveg mátulegur fyrir nýgifta frú til að halda bóndanum í hæfilegri f jarlægð“. Hann hló lágt. „Reynið hann!“ Dick varð litið í augu Lesleys og varð dálítið hissa. Hann gat ekki ráðið af svip hennar, hvað henni bjó í brjósti, en helst hélt hann að hún væri hrædd við eitthvað eða kvíðin. Hún hafði tekið af sér litla hattinn; hár hennar fell í jörpum liðum niður á herðar. Hún hafði aldre. verið eins fögur í hans augum og nú. í útliti virtist hún ekki vera nema átján ára gömul, en sjálf hélt hún því fram að hún væri tuttugu og tveggja. Eftir nokkuð hik tók hún við byssunni af Price. Hún beit á vör lyfti byssunni upp að vang- anum og skaut án þess að miða. Á skotskífunni sást ekkert ÖEIMILISRITIÐ t 55

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.