Heimilisritið - 01.07.1945, Side 61

Heimilisritið - 01.07.1945, Side 61
spámannsins blóðlitaðist vinstra megin, heyrði hann bjarta rödd úti fyrir. „Eg gat ekki gert að því, Price!“ Það var rödd Leslevs „Það kom einhver við handlegg inn á mér, og ég hélt um gikk- inn, og skotið reið af alveg ó- viljandi!“ Röddin virtist koma úr dálítilli fjarægð og var un- aðsblíð — andstæð regninu og storminum úti. „Eg vona að ég hafi ekki hitt neinn!“ KLUKKAN hálf níu þetta sama kvöld gekk Dick Mark- ham mjög þungt hugsandi um gólf í dagstofunni heima í húsi sínu, sem stóð skammt fyrir utan Six Ashes. Þegar síminn hringdi, greio Dick heyrnatólið með slíkum ofsahraða, að síminn var rétt að segja dottinn niður á gólf. „Halló!“ Það var Hugh Middlesworth. Dick ræskti sig og lét síga- rettuna, sem hann hafði verið að reykja, í öskubakka á borð- inu. Hann greip um símatólið með báðum höndum. „Hvemig er með Sir Harvey’ Er hann á lífi?“ Það varð dálítil þögn. „Ja, já, hann er lifandi. Sann- leikurinn er sá að hann langar til að tala við yður. Gætuð þér komið hingað heim til hans og HEIMILISRITIÐ spjallað við okkur? Það er ekki nema steinsnar". „Eg kem“, svaraði Dick. „Strax og ég hef hringt til Lesley og sagt henni að allt sé í lagi. Hún er búin að vera að hringja í allt kvöld og hún er varla með sjálfri sér út af þessu“. „Eg skil. Hún hefur verið að hringja hingað líka. En — það var meira en lítið hik í 'rödd læknisins — „hann vill síður að þér hringið til Lesley fyrr en hann er búinn að tala við yður. Hann segir yður hvers vegna þegar þér komið. Er. þangað til —“ aftur hikaði læknirinn — „megið þér engum segja það sem ég hef sagt yður og þér megið ekki koma með neinn með yður“. Þegar Dick hljóp við fót eft- ir veginum, heyrði hann kirkju- klukkuna slá tíu. Er hann kom að húsinu stóð Hugh úti fyrir dyrunum og bauð honum inn í rúmgóða forstofu með vönduð- um húsgögnum. „Er Sir Harvey mjög hættu- lega særður?“ spurði Dick. „Það er ekki hægt að segja að hann sé særður“. Dick lokaði útidyrahurðinni á eftir sér svo að skall í og sner; sér forviða að Hugh. Frh. í næsta hefti. 5Þ-

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.