Heimilisritið - 01.07.1945, Side 63

Heimilisritið - 01.07.1945, Side 63
leikstjörnunum Rita Hayworth og Greer Garson símskeyti, þar sem hann lýsti aðdáun sinni á þeim. í * skeyti sínu til Greer Garson hældi hann henni einkum fyrir leik henn- ar í kvikmyndinni „Frú Miniver". Hann greiddi fyrir símskeyti allt að 20 orðum. Rita Hayworth svaraði ekki, en Greer Garson sendi svo- hljóðandi svarskeyti: „Símskeyti yðar vakti óblandna hrifningu mína vegna þess að frú Miniver mælti fyrir munn allra þjóða sem berjast fyrir frelsi — Greer Garson“. Ef einhver skyldi hafa hug á að fara að dæmi þessa manns er rétt að hann athugi fyrst, að það kostar kr. 4,89 fyrir orðið til Hollywood. HAFIÐ ÞIÐ FRÉTT .*? ALAN LADD og WILLIAM BENDIX, sem leikið hafa saman í mörgum kvik- myndum, urðu ósáttir ekki alls fyrir löngu, en eru nú vinir aftur. Þau eru að skilja aftur, CARY GRANT og Barbara Hutton — og nú er það alvara. Leikarablaðið ,,Modern Screen“ átti 15r ára afmæli í júní. JUNE ALLYSON og DICK POWELL eru alltaf saman. Taldar eru miklar lík- ur til þess að þau eigi eftir að bindast ,,traustum“ böndum. Kvikmyndin „Wilson“ er sú kostn^ aðarsamasta, sem filmuð hefur ver- ið, kostaði 4 200 000 dollara. Hún var tekin seint á síðasta ári og þykir fram úr skarandi góð. Faðir LAUREN BACALL hefur látið þau orð falla, að BOGART sé of gam- all fyrir dóttur sína, hann gæti verið faðir hennar. — Orðrómur hefur borist um að Eleanor Parker sé að skilja við mann sinn og sömuleiðis Robert Hutton og Natalie Tompson. Seljum þetta ekki dýrara en við keyptum. VAN JOHNSON er vafalaust mest um- talaði karlmaðurinn í heiminum um þess- ar mundir, af þeim, sem ekki eru komn- ir yfir þrítugt. Hann lítur ekki á kven- fólk að svo komnu. KATHARINE litla, dóttir JOHN GAR- FIELDS, dó snögglega fyrir skommu. Hún var augasteinn föður síns, efnilegt- og aðlaðandi barn, enda er hann bugað- ur maður síðan. Þótt GLARK GABLE hafi fullyrt fyrir skömmu, að hann ætlaði sér ekki að leika í kvikmyndum framar, þá er hann- samt farinn til þess núna. Er það í kvik- myndinni ,,This Strange Adventure“. ANNE BAXTER ,,hryggbraut“ JOHN HODIAK nýlega, að því er Hollywood- blöðin segja. Þau hafa verið mjög sam- rýmd í marga mánuði, en móðir henn- ar mun hafa verið á móti ráðahagnum. RAY MILLAND og kona hans hafa* slitið samvistum eftir 12 ára hjónaband. Þau eiga son á sjötta ári, og skilnaður þeirra kemur öllum mjög á óvart, jafn- vel nánustu vinum þeirra. Sagt er að HUMPHREY BOGART hafi þurft að borga Mayo Methot 300,000 dollara þegar þau skildu. DICK HAYMES og kona hans, sem verið hafa gift í þrjú ár og eiga 2 börn, urðu ósátt nýlega og ákváðu að skilja, en hafa nú sæzt aftur. LORETTTE YOUNG og GEORGIA systir hennar eiga báðar von á barni í ágúst. Lorette á níu ára gamla uppeldis- dóttur og son, sem fæddist í ágúst í fyrra. VERONIKA LAKE verður 23 ára 14. nóvember og um það leyti á hún von á^ erfinga. Hún á fjögurra ára gamladóttur. JUDY GARLAND og VINCENT MIN- ELLI hafa opinberað trúlofun sína. Hann er roskinn og mikils metinn leikstjóri. HEIMILISRITIÐ 61

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.