Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 25
hans og erfiði — svo margir
draumar.
Augu hennar fylltust tárum.
Hann hafði gripið um hönd
hennar þennan dag, þrýst hana
svo fast, að hún kveinkaði sér.
En í burtu fór hann. Hann hafði
brosað til hennar og sagt:
„Jörðin er dauð, Mary, en við
lifum. Maðurinn ber ábyrgð
gagnvart þeim, sem lifa. Þú
veizt, að ég varð að fara núna,
er ekki svo, elskan mín?“
Barnið hrærðist í henni. Aft-
ur fann hrynjandin í lestinni
gleðilegan enduróm í hugsunum
hennar. „Nýtt líf“, hvíslaði hún,
„nýtt Hf í sólskininu fyrir okkur
öll þrjú“.
LOIS Brown vaknaði klukk-
an hálf sjö. Hún lá algerlega
hreyfingarlaus og reyndi að falla
í svefn aftur. Hálf sjö, hugsaði
hún og varp öndinni. Þegar ég
mætti nú sofa til klukkan níu.
En svona var komið. Arum sam-
an hefur vekjaraklukkan hringt
á ákveðnum tíma, og einn góð-
an veðurdag er ekki lengur þörf
fyrir vekjaraklukkuna, en mað'-
ur vaknar samt sem áður sjálf-
krafa á venjulegum tíma.
Það voru svo margir ávanar,
sem hún hafði vonazt til að geta
gleymt. Þeim vana, að bíða á
hverju kvöldi á öndinni eftir
upphringingu frá Bob. Þeim
vana, að vera honum háð og
segja honum frá öllu, sem hafði
gert henni gramt í geði yfir dag-
inn. Þeirri hugsvölun, sem hún
fann við að sterkir handleggir
hans vöfðu hana örmum og
heyra rólega rödd hans, þegar
hún var búin að segja honum frá
Jinny og skammadembunni frá
manni hennar.
„Þau meina ekkert með því,
elskan mín. En svona verðum
við alls ekki. Við munum tala
rólega um málin“. Oryggisleys-
iskenndin gamla var farin að
naga hana aftur. Hún flýtti sér
fram úr rúminu, fór í morgun-
sloppinn og gekk eftir ganginum
að snyrtiherberginu.
Konan úr klefa nr. 7 var þar
þegar. Hún sat fyrir framan
spegilinn og burstaði hár sitt.
Hún sneri sér við og brosti af-
sakandi, þegar Lois Brown kom
inn.
„Eg skal flýta mér að Ijúka
mér af“.
„Það liggur ekkert á“, sagði
Lois Brown og setti töskuna sína
á hilluna fyrir framan spegilinn.
„Það er nóg pláss fyrir okkur
báðar“.
IMary Wightman var farin að
taka saman dót sitt, en nú hætti
hún því og sagði:
,JÞér hafið þá ekkert á móti
því að ég verði hér dálitla stund
ennþá?“
NÓVEMBER, 1951
23