Heimilisritið - 01.11.1951, Blaðsíða 61

Heimilisritið - 01.11.1951, Blaðsíða 61
gamall siður að brjóta glasið, eftir að maður hefur skálað við sérstaklega há- tíðlegt tækifæri. Enginn á að drekka úr því glasi aftur,“ sagði hann. „Ugi færðu mér annað glas!“ „Færðu okkur tvö glös Ugi!“ sagði Joan brosandi og kastaði sínu glasi í gólfið, eftir að hafa tæmt það. „Ég mun aldrei segja „Talofa“ vjð nokkurn ann- an mann, og ég get gert þetta eins- rösklega og þú, Hilary!“ „Fyrirtak! Vel af sér vikið, Joan!“ hrópaði Hilary og flýtti sér kringum borðið til Joan og kyssti hana, en Ugi, sem var steinhissa á þessu, flýtti sér út til að sækja ný glös og trúði Kuku fyrir, að hinn mikli hvíti húsbóndi og hvi'ta gifta konan hans væru í bardaga- hug. Joan og Hilary sátu lengi til borðs, og á eftir sátu þau í dimmunni úti á svölum og töluðu saman í lágum hljóð- um, en trumbuhljóðið neðan úr þorp- inu, þrumaði ógnandi alla hitabeltis- nóttina. XXIII Hljóð — og ljós! TRUMBURNAR þögnuðu ekki alla nónina og héldu vöku fyrir Joan. í dögun kom Hilary inn til að kveðja hana með kossi og lagði síðan af stað með hópi innfæddra, eftir að hafa hug- hreyst hana. „Á eftir byrjum við hveitibrauðsdaga okkar, og þeir skulu vara alla okkar ævi, ástin mín,“ sagði hann um leið og hann sleit sig úr faðmi hennar. „Láttu ekki hugfallast, Joan! Þú skalt vera óhrædd! Ég skal koma heim til þín heill á húfi.“ Joan varð ein eftir í húsinu með Renu, en utan við húsið voru sex her- menn sem öryggisverðir. Joan gat ekki haldið kyrru fyrir, en gekk hvíldar- laust fram og aftur, eins og dýr í búri. Það var hræðilegt fyrir hana að ganga hér um aðgerðarlaus, án þess að vita neitt um hvernig gengi. Henni fannst hver stund óralengi að líða. Rena mat- bjó handa henni, en Joan gat ekki kom- ið nokkrum bita niður og- skildi við matinn ósnertan. „Hvers vegna fékk ég ekki Hiiary til að taka mig með?“ sagði hún hátt við sjálfa sig og gekk fram og aftur á svölunum. „Staða mín er við hlið hans, og allt væri betra en þessi hræðilega óvissa.“ Dagurinn sniglaðist áfram, og loks, þegar líða tók á daginn, virtist Joan sem hún heyrði skot. Hún veitti því einnig athygli, að varðmennirnir úti fyrir húsinu virtust órólegir. Hún gægð- ist yfir sandpokagirðinguna og kom auga á ungan mann, sem kom hlaup- andi í áttina til hússins, móður og más- andi og löðrandi sveittur. Hann sagði eitthvað við varðmennina, sem hópuð- ust utan um hann og blöðruðu hver framan í annan. „Rena, Rena! flýttu þér út og komstu eftir, hvað um er að vera og hvað sendiboðinn segir!“ hrópaði Joan. Rena flýtti sér út og spurðist fyrir, og þegar hún kom inn til Joan aftur, var hún bæði æst og óttaslegin. „Mikli hvíti húsbóndi, hann vera skotinn alltof mikið af hvítur maður, NÓVEMBER, 1951 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.