Heimilisritið - 01.11.1951, Blaðsíða 51
r
Hvað dreymdi þig
í nótt ?
Ytarlegcn~ draumaráðningar
HAUSKÚPA. — Það er vissara að vera við öllu búin(n), ef mann dreym-
ir hauskúpu eða hauskúpumerkið.
HAUST. — Haust í draumi er fyrirboði um afbrýði og aðra tortryggni.
HEFILSPÓNN. — Að sjá hefilspæni í draumi, einkum ef þeir feykjast til,
má dreymandinn reikna með happi í náinni framtíð.
HEFND. — Dreymi þig að þú sért að hefna þín á einhverjum, sem gert
hefur þér mizka, boðar það þér niðurlægingu, jafnvel fangelsun.
HEIÐURSMERKI. — Dreymi þig að þú sért með heiðursmerki, boðar það
þér gleði og gott gengi.
HEILRÆÐI. — Að dreyma að þú gefir heilræði, merkir að þér hlotnist
verðskuldaður heiður og virðing. Þiggja heilræði: erfiðleikar, en jafn-
framt hjálpsamir vinir.
HEIMILI. — Að dreyma heimili sitt boðar hamingju í núverandi kring-
umstæðum, góða heilsu, hagsæld og gæfu í hjónabandi.
HEIMKOMA. — Dreymi þig heimkomu vinar eða ættingja, sem dval-
ið hefur lengi fjarvistum, boðar það góðar fréttir eða peninga.
HEIMSENDIR. — Ef þig dreymir að heimsendir sé í nánd, muntu brátt
heyra stórfréttir, sem munu hafa gífurleg áhrif á lífsferil þinrn
HEIMSÓKN. — Dreymi þig að þú farir í heimsókn, munu áform þín
mæta mótblæstri — áform, sem munu skapa miklar tekjur, ef hægt
reynist að framkvæma þau.
HEKL. — Ef þig dreymir að þú sért að hekla, mun þess ekki langt að
bíða, að nýr og atburðaríkur kapítuli hefjist í lífi þínu.
HELLIR — Dreymi mann að hann sé í helli, boðar það honum fátækt og
mikil óþægindi, a. m. k. mun hann missa góða vini. Finnist honum
hinsvegar að hann komist út úr hellinum, táknar það raunalétti. Og
það eitt að sjá helli er fyrir því, að ráð þitt muni vænkast á næst-
unni.
HELTI. — Ef mann dreymjr að hann sé haltur, mun braut hans verða
stráð erfiðleikum og vonbrigðum.
HELVÍTI. — Að dreyma helvíti boðar ógæfu, ef til vill í sambandi við
NÓVEMBER, 1951
49