Heimilisritið - 01.11.1951, Page 43

Heimilisritið - 01.11.1951, Page 43
tjáði hann mér alveg uppnum- ínn af hrifningu, „til minnis um hina yndislegu daga- í Monte Carlo. Veljið nú!“ Hann greip dýrlegt hálsmen, bar það við háls minn og dró mig að speglinum. „Sjáið bara, hvernig það fer á fallega, hvíta hálsinum yðar! Hreint og beint dásamlegt!“ og svo kyssti hann hönd mína aft- ur. Nú fékk ég loksins málið aft- ur og bar fram heilmörg mót- mæli, sem ég átti, ef ég á að' vera alveg hreinskilin, afar bágt með að orða. Það var erfitt að af- ueita nokkrum af þessum fallegu .skartgripum, og ég væri ekki ó- svikin kona, ef ég freistaðist ekki til að láta undan! A hinn bóg- Inn var ekki auðvelt fyrir sið- legan kvenmann, að taka á móti slíkum skartgripum — og þakka kærlega fyrir — þó að mig lang- aði sannarlega mest til þess. „Mér þykir það leitt“, sagði ég. „Þér vitið sennilega ekki, að ég er gift. Eg get ekki tekið á móti gjöfum frá ókunnugum manni — og þar að auki. ...“ Eg þagði, en svipur minn hef- ur sjálfsagt talað nógu skýrt, því að hann skildi í öllu falli, hvað ég átti við. „Þér eruð hræddar við, að ég muni heimta eitthvað í staðinn!“ sagði hann alvarlegur. „Það mun ég ekki gera. ... Mér er nóg að fá bara leyfi til að gefa yður minningargjöf. Þá veit ég, að þér munuð ætíð minnast mín og þöglar ástar minnar! Og þó . . .“ hélt hann áfram dálítið hrað- mæltari, „þér getið gefið mér ofurlítið á móti ... bara smá- muni! Mynd af yður, frú . . . hún stendur þarna á borðinu ... skrifið nafn yðar og dagsetning- uná á þessu fyrsta og eina stefnumóti okkar .. . !“ Eg horfði á hann, en það fólst svo einlæg bæn í augnaráði hans, að ég gat ekki andmælt! Eg tók myndina úr rammanum í flýti, og með sjálfblekungnum, sem hann rétti mér, skrifaði ég nafn mitt og dagsetninguna. ... Eg mun aldrei gleyma hrifningu hans, er hann stakk myndinni í innri vasa sinn. Síðan snerti hann hrúguna á borðinu ... og valdi einmitt þetta demant- skreytta gullveski ... „Þér neitið þó ekki að taka við því“, sagði hann í bænar- rómi. Eg stóð og handlék veskið í sælu hugarástandi, en maldaði stöðugt í móinn, þó að' það væri ekki lengur af eins mikilli sann- færingu. I sömu andrá opnaðist hurðin og Albert kom inn. Hann horfði undrandi á ókunna mann- inn og alla skartgripina, sem lágu dreifðir út um allt borðið. Ég man ekki lengur hvaða ruglings- NÓVEMBER, 1951 41

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.