Heimilisritið - 01.06.1953, Blaðsíða 7
inni hef ég líka beztu endur-
minningar, bæði varðandi land-
ið sjálft og viðtökurnar, seni við
hlutum þar. Þess ntá líka geta,
að hlutverk Violettu í „La
Traviata“, sem ég á að syngja í
Reykjavík, er eitt af eftirlætis-
hlutverkum niínum. Gaman
væri, ef tími og tækifæri gæfist
til, að efna til einsöngshljóm-
leika í Reykjavík, annað hvort
nú éð'a síðar. Einnig vonast ég
til að geta átt þess kost að kynn-
ast íslenzkn söngiagagerð á
þessu ferðalagi, enda færi að
sjálfsögðu vel á því, að eitthvað
A-æri af íslenzkum lögum á söng-
skrá slíkra hljómleika. /2.
Athugið
Hinn 1. júlí n. k. renn-
ur út frestur til þess
að skila sögum í smá-
sagnasamkeppni Heim-
ilisritsins. Fyrstu verð-
V
laun eru liIOO krónur.
Sjá nánar í jan—febr.
heftinu.
e----------------------------------
Leikarafréttir
Ann Blyth og James McNulty
læknir verða geí'in saman 27. júní.
... Clark Gable og Grace Kelly
eru sögð í einkar kærleiksríkum
kunjjingsskap. ... Gary Cooper og
kona hans eru nýlega skilin. Gary
er nú einhver allra vinsælasti
leikari Ameríku og er talinn vera
upp á 3 milj. dollara. ... Gregory
Peck og kona hans hafa verið
skilin í nokkra mánuði, en munu
nú vera að taka saman aftur. ...
Judy Garland hefur ekki leikið í
nokkur ár og er orðin áberandi
holdug. í sumar á hún að leika í
kvikmyndinni „A Star Is Born“
og er byrjuð að megra sig í því
tilefni. Fyrstu 10 dagana léttist
hún um 5 kíló. ... Gwen og Don-
ald O’Connor eru skilin. ... Söng-
og filmdísin Rosemary Clooney og
skapgerðarleikarinn Jose Ferrer
eru nú saman í öllum frístundum
sínum. . „. June Haver er í þann
veginn að verða nunna, eins og
flestir hafa sjálfsagt frétt. ...
Miklir kærleikar eru nú með
þeim Bing Crosby og Mona Free-
man, en Bing varð ekkjumaður
fyrir alllöngu. ... Hjónin Shelly
Winters og Vittorio Gassmann
eignuðust dóttur fyrir skommu,
sem kom löngu fýrir tímann. ...
Ginger Rogers (sem er sögð 41
árs) og Jaques Bergerac (26 ára)
voru gefin saman fyrir nokkru. ...
Fernando Lamas er mikið kvenna-
gull; fyrir nokkru var Lana Turn-
er kærastan hans, en nú er það
Arlene Dahl. ..
•----------------------------------
JÚNÍ, 1953
5