Heimilisritið - 01.04.1955, Síða 23
ast upp í menn í svefni. Karl II
Spánarkonungur, sem uppi var á
seytjándu öld, lét sálusorgara
sinn og tvo munka vaka yfir sér,
til þess að haida frá sér djöfl-
um meðan hann svaf. Fram á
síðustu tíma var því trúað, að
næturloft ylli sjúkdómum, og
svefnherbergisgluggar voru
vandlega lokaðir að næturlagi.
Þessi trú var arfur hinna gömlu
hugmynda um djöflafaraldur
sem sjúkdómsorsök.
Samkvæmt þeirri trú, að
djöflar yllu sjúkdómum, voru
lækningaaðferðirnar djöflasær-
ingar, bænir, handaálagningar
og snerting helgra dóma. Reynt
var að styrkja sjúklingana í
trúnni og allur bati var þakkað-
ur framangreindum ráðstöfun-
um, og þar sem 80—90 af hundr-
aði allra veikinda læknast af
sjálfu sér eins og fyrr er sagt,
urðu þær lækningar æði marg-
ar, sem þessum aðferðum voru
eignaðar. En ef sjúklingurinn
þrjózkaðist við að ná bata, var
álitið, að hann væri persónulega
andvígur því að ná heilsu, og
hlaut hann þá meðferð sam-
kvæmt því.
Þegar farsóttir geisuðu, voru
þrjózkufullir sjúklingar stun^-
um bundnir saman tólf í einu
og færðir til kirkju. Var þeim
kastað þar á gólfið og látnir
APRÍL, 1955
liggja þar, unz þeir dóu. Eða þá
að þeir fengu trúna aftur, djöfl-
arnir flýðu og sjúkdómurinn
þar með. Það kom sjaldan fyrir
að þessi aðferð hefði bata í för
með sér, en þá var sjúklingnum
um kennt en ekki meðferðinni.
Sá máttur, sem sumum dýr-
lingum var gefinn til þess að
lækna á yfirnáttúrlegan hátt,
var álitinn búa 1 og streyma frá
helgum dómum og öðrum hlut-
um, sem þeir höfðu blessað.
Heilagar lindir, sem hinir þjáðu
skyldu baða sig í, skrín sem þeir
báðust fyrir við, ásamt helgum
dómum, sem þeir snertu, urðu
lækningameðöl.
Eftirspurn eftir helgum dóm-
um gerði framleiðslu þeirra að
atvinnugrein. Hún hófst í land-
inu helga og þróaðist ört. Sú
staðreynd, að flestir þeirra helgi-
gripa, sem krossfarar og píla-
grímar keyptu og fluttu með
sér til Evrópu, voru samtíma-
framleiðsla, dró ekki hið minnsta
úr lækningakrafti þeirra.
Hinn eftirsóttasti allra slíkra
lækningamuna var flís úr krossi
Krists, og ef allar þær flísarr
sem dreifðar voru um gjörvalla
Evrópu, hefðu safnazt saman á
einn stað, myndi það hafa verið
nægilegt efni í marga krossa.
Tár Frelsarans, Maríu Guðs-
móður og Sankti-Péturs komu
21