Heimilisritið - 01.04.1955, Page 62
í geði, þegar hún kom niður til
þess að borða.
„Bruce,“ sagði frúin, sem auð-
sjáanlega var ekki orðin jafn-
góð af höfuðverknum, „þú verð-
ur að hjálpa mér við að ganga
frá öllu fyrir ferðalagið. Og þú
þarft að sjá um að gera upp við
þjónustufólkið. En vel á minnzt,
þjónar — hvernig í ósköpunum
eigum við að ná okkur í sóma-
samlegt þjónustufólk í Skot-
landi. Þar hefur sjálfsagt verið
notazt við sveitafólk, sem ekk-
ert hefur lært.“
„Þú þarft ekkert að óttast í
þeim efnum,“ flýtti Linda sér
að segja. „Fólkið heima í þorp-
inu hefur kynslóð eftir kynslóð
gengt þjónustustörfum í höll-
inni, og þú munt komast að raun
um áð það er bæði ólatt og fært
í þeirri grein.“
„Ég er vön þjónustufólkinu
hérna í London,“ sagði frúin
hvasslega, „og það kann sitt
verk til fullnustu. Ég efast um
að hægt sé að bera þetta sveita-
fólk saman við það. En það er
ekki svo langt til Edinborgar eða
Glasgow að ekki ætti að vera
hægt að fá nothæft fólk þaðan.“
„Þess gerist varla þörf,“ sagði
Linda, „og það myndi skapa óá-
nægju í þorpinu, ef nýtt þjón-
ustulið yrði ráðið í höllina.“
„Ég vona,“ sagði frú Kinlock
ískaldri rödd, „að þú leyfir mér
að haga mínum eigin málefnum
eins og mér sjálfri sýnist!“
Linda komst í uppnám við til-
hugsunina um, að ef til vill yrði
hið trygga og húsbóndaholla
starfsfólk föður hennar rekið á
dyr, en hún varð að játa, að nú
var þetta ekki lengur mál, sem
hana varðaði, svo að hún sagði
ekkert meira.
Þegar þau stóðu upp frá borð-
um og hún ætlaði að ganga fram
með frú Kinlock, kallaði Bruce
til hennar.
„Linda, þú manst að ég þarf
að tala við þig inni í bókastofu
í kvöld,“ sagði hann. „Hvernig
hentar þér það klukkan níu?“
Hann leit spyrjandi á hana,
og augun voru vonbjört, þegar
hún svaraði:
„Vitanlega hentar það mér,
Bruce. Þakka þér fyrir.“
Þegar hún kom inn í bóka-
stofuna klukkan á mínútunni
níu, stóð hann upp og færði stól
að arninum handa henni.
„Ég þarf að tala við þig í ein-
rúmi,“ sagði hann, „af því ég
hef tillögu fram að færa. Það er
varðandi stöðu, sem ég held að
væri tilvalin fyrir þig, en ef þér
lízt ekki á uppástunguna. þá
máttu ekki taka tilboði mínu
einungis af skyldurækni við
mig. Ég þekki mann, sem vant-
60
HEIMILISRITIÐ