Heimilisritið - 01.09.1957, Side 6
gleymt þessum unga pilti, sem
liét Frank Woolworth, og hinni
furðulegu ævisögu hans. Það er
aðeins erfingi hans, dótturdótt-
irinn Barbara Hutton, sem
minnzt er á í heimsfréttunum
og slúðurdálkum víða um heim.
Frank Woolworth opnaði aðra
verzlun með fjármagni, sem
hann fékk að láni og fyllti allar
hillur með vörum, sem kostuðu
samanlagt 200 dollara, en út-
söluverð á hverjum hlut var 10
cent. Verzlunin gekk eins og í
sögu strax í byrjun og var upp-
hafið að feiknarmiklum auði,
en Barbara fékk þriðjunginn af
þeim milljónum í arf, þegar hún
var fimm ára að aldri.
Það er mikið efamál að nokk-
ur bankastjóri eða lögfræðingur
geri sér fulla grein fyrir því,
livað Barbara á mikla peninga
nú. A 19 ára tímabili var það
svo vel ávaxtað, að auður henn-
ar hennar jókst úr 25 milljónum
dollara upp í 35 milljónir doll-
ara, að því er áætalð var.
Þegar Barbara náði lögaldri
var haldið upp á það með mik-
illi viðhöfn á stærsta danshús-
inu í New Yorlc. Fjórar hljóm-
sveitir léku, gestirnir voru þús-
und að tölu, og samkomusaln-
um var breytt í stóran skemmti-
garð með trjám, blómgarði og
tíu þúsund rósum.
Það var skrifað feiknamikið
um þessa veizlu, en minna get-
ið um það, að Barbara gaf átta
milljónir dollara í tilefni dags-
ins. Hún eyddi þriðjungi af auði
sínum í gjafir og aðstoð við
ýmislegf fólk.
WOOL WORTH-f j ölskyldan
var aldrei hamingjusöm. Eigin-
kona Frank Woohvorths bilaði
á geðsmunum, en lifði þó mann
sinn. Uppáhalds dóttir hans,
móðir Barböru, fannst látin í
rúmi sínu aðeins 35 ára að aldri
og tengdasonur hans framdi
sjálfsmorð.
Barbara var mjög einmana,
þegar hún var látin vera eftir í
skólanum, meira að segja eftir
að skólaárinu var lokið. „Fyrstu
vinir mínir voru meðal þjón-
ustuliðsins,“ sagði hún síðar.
Það er því ekki að furða þó
að hamingjubraut hennar væri
þyrnum stráð og lægi gegnum
hjónabönd og skilnaði, stundar-
gleði og tómleika.
Fyrsti maður hennar var
Alex Midvani prins, sem eyddi
hveitibrauðsdögunum með
henni á gondólunum í Feneyj-
um og tunglskini í síkjunum
þar.
„Okkur þótti mjög vænt um
hvort annað,“ segir Barbara, en
tilfinningar þeirra urðu aldrei að
4
HEIMILISRITIÐ