Heimilisritið - 01.09.1957, Side 8

Heimilisritið - 01.09.1957, Side 8
landi, og það er sagt, að hann liafi eitt sinn sagt Barböru, að hann kærði sig ekki um að hætta við það fyrirtæki. Hvers vegna giftist hún hon- um ekki löngu fyrr? spyrja margir. „Þýzk sérvizka,“ segir Bar- bara. Samt sem áður var vin- átta hans ávallt traust og trygg. Hún kaus að leita einverunn- ar í höll einnni í Tangier og þar var von Crannn bezti gestur hennar. Hann fór með hana lieim til Þýzkalands og kynnti hana fyrir ættingjum sínum. Það fór loks að bóla á því, að hún væri hamingjusöm. Hún fór að leika tennis, synda og meira að segja að dansa aftur. Það gekk svo langt, að hún fór að yrkja! Svo giftu þau sig, og enn einu sinni er hún að koma sér upp nýju heimili, að þessu sinni í Mexico. Þar getur sonur hennar heim- sótt hana þegar hann á frí í skólanum og nú virðist hún liafa hlotið hamingjuna í hjóna- bandinu. Loksins er ríkasta kona heimsins farin að reyna að lifa eins og fólk er flest. * Reglur um kossa Þessar reglur um kossa birtust nýlega í enskri bók: 1. I samkvænu, þar sem kossaleikir eru tíðkaðir, ber að gæta þesss að skola munninn oft og vel. 2. Gætið þess að verða ckki fyrir snöggum hitabreytingum, er þið kyssið. 3. Kyssið ekki á fjölförnum stöðum. 4. Það er stórhættulegt að kyssa í loðkápu aðra mínútuna og létt- klæddur þá næstu. 5. Kyssið ekki í járnbrautarlestum, strætisvögnum, blómabúðum, leikhúsum, matvörubúðum og lyftum. 6. Kyssið aldrci í illa loftræstu herbergi. 7. Það er óskynsamlegt að kyssa þann, sem hefur inflúensu. 8. Varast ber að kyssa þann, sem er eitthvað lasinn. (Skarplega ályktað frá næstu reglu á undan!) 9. Ef þið þurfið að iðka listina að kyssa, gcrið það þá í einrúmi og freistið ekki annarra. 10. Ef þið eruð „miður ykkar“ eftir að hafa kysst, þá fáið ykkur heitt sinneps-fótabað — og forðizt dragsúg. 6 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.