Heimilisritið - 01.09.1957, Page 17
greip mig kæfandi skelfing.
Eitthvað hræðilegt hafði komið
fyrir Don! Eg vissi það alveg!
Og þá varð mér ljóst, að það
eina, sem máli skipti, var ör-
yggi hans.
Einhvern veginn kom ég Súsí
á heimilið. Svo hljóp ég í átt
til brunarústanna, uns ég kom
auga á gráhærðan flokksstjóra
úr slökkviliðinu. „Maðurinn
minn — Don Miller — Iiann er
þó ekki —“
„Hann er úr hættu,“ sagði
maðurinn, „en hann örmagnað-
ist af eitruðum reyk. Þeir eru
að fást við hann núna.“
Seinna, þegar Don var rakn-
aður við, ók slökkviliðsmaður-
inn okkur heim. „Don er góður
liðsmaður,“ sagði formaðurinn.
„Skrítið að hann skyldi gleyma
að fá sér loft.“
„Loft?“ sagði ég. Ég hafði
aldrei áður kært mig um að
hlusta á fagmál slökkviliðsins.
„Sæg af. hreinu lofti, sem
maður fær sér úti. þegar maður
er búinn að fá nóg af reyknum.“
Hann þagnaði. „Þér vitið ekki
mikið um starfið, er það?“
Mér varð nú ljóst, að ég hafði
aldrei hugsað neitt um starf
mannsins míns. Ég hafði verið
blind fyrir þeim hættum, sem
hann varð sífellt að horfast í
augu við.
„Slökkviliðsmaður er eins og
línudansari eða flugmaður,“
sagði gamli maðurinn. „Hann
má ekki verða fyrir heimilis-
áhyggjum. Verður alltaf að
vera árvakur, má aldrei missa
jafnvægið.“ Næstu orð hans
brenndu sig inn í vitund mína.
„Ivona slökkviliðsmanns hefur
líka mikilvægu hlutverki að
gegna. Hún verður að gera hann
hamingjusaman. Það er eina líf-
trygging hans. Þið tvö — þið
eruð samstarfsmenn.“
Líf Dons var í mínum hönd-
um! Ég skildi það nú. Slökkvi-
starfið hafði ekki valdið óham-
ingju okkar. Hún var mín sök.
Slys Dons var líka mér að
kenna. Ég hafði skapað eitrað
andrúmsloft, næstum hrakið
Don frá heimilinu í dauðann.
Næstu dagana reyndi ég að
vera sannkölluð eiginlcona, lét
í té skilning og ástúð. Upp frá
þessu gleymdi ég alveg mínum
réttindum, mínum þörfum. —•
Heimilislíf okkar varð aftur
hamingjuríkt.
Og það bezta er, að síðan
þennan marz-morgun hefur Don
aldrei orðið fyrir slysi. Hann
fær lausn eftir þrjú ár, aðeins
fjörutíu og eins árs gamall. Þá
fáum við nógan tíma til að vera
saman. — Tíma til að vinna
saman. *
HEIMILISRITIÐ
15