Heimilisritið - 01.09.1957, Page 27

Heimilisritið - 01.09.1957, Page 27
skora mig. á hólm, vildi íletta ofan af mér, og ég reyndi að bæla niður ástríðuólguna, sem gaus upp í mér. „Eg fann hann af tilviljun,“ laug ég og bætti við, „mér fannst hann svo við- kunnanlegur, þegar ég gekk framhjá með Dick í gær.“ „Stígurinn?“ spurði hann, og það var glettni í augum hans og öryggi í brosinu. Eg reyndi að brosa líka en mér var ekki rótt, mér fannst hánn laglegasti piltur, sem ég hafði kynnst og sá leyndar- dómsfyllsti. Ég gat skilið, hvers vegna svo margar stúlkur féllu fyrir honum. Hann var villtur og kærulaus og óábyggilegur. Hann hafði alla þá kosti, sem stúlka vildi að elskhugi hefði, en enga þeirra, sem eiga skylt við um- hyggjusemi, hugulsemi eða annað, sem myndi gera karl- mann að fyrirmyndar eigin- manni. Hann var allar dýrslegar hvatir sameinaðar í eitt, með frumstæðu aðdráttarafli, sem var ómótstæðilegt. Hann var maður, sem konur myndu laðast að og brenna sig á, elta á rönd- um, syrgja og hugsa um, þegar þær væru komnar í örugga höfn með traustum eiginmönnum. Hann var logi, sem kveikti í öllu sem hann snerti og myndi HEIMILISRITIÐ brenna í skærum dýrðarljóma. Ég fann það, og nýju tilfinn- ingarnar, sem flæddu um mig gerðu mér kleyft að skilja það og ég færði mig ekki frá honum. Mér þótti vænt um návist hans. Mér þótti vænt um hinar hlýju tilfinningar, sem flæddu um líkama minn. Mér þótti vænt um eðlishvötina, sem gaf mér til kynna, að ég væri ekki leng- ur stelpa lieldur ung kona, sem væri að klífa reynslutindinn og ég fylltist taumlausri, logandi eftirvæntingu. Hann horfði kuldalega á mig og mér varð Ijóst, að ég hafði starað á hann á meðan hugs- anirnar þutu um höfuðið á mér. „Kemur þú hingað oft?“ stamaði ég til þess að leyna um- rótinu innra með mér. „Alltaf,“ sagði hann. „Það er betra en að vera í margmenn- inu.“ I fyrsta sinn leit hann af mér og á sjóinn og ég fvlgdi augna- ráði hans eftir. Brimlöðrið þyrl- aðist yfir klettana, rauk eins og æðandi fingur gerðir úr myrkri vfir steinana og sté í regnbogum lita og froðu, eins og það ætti og krefðist alls í farvegi sínum. Mér fannst þessi síkvika hreyfing sjávarins líkjast um- rótinu í líkama mínum. Nær- 25

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.