Heimilisritið - 01.09.1957, Page 34

Heimilisritið - 01.09.1957, Page 34
sem ekki vildu i'æðast. „Mér þykir það leitt, sem kom fyrir í gær,“ sagði hann loks. „Hvað áttu við?“ „A ströndinni,“ sagði hann. „Þegar þú lagðir höi'uðið á öxl- ina á mér.“ „Það var ekkert ineð það, Dick,“ sagði ég. „Eg veit það, en það kom svo undarleg tilfinning yfir mig. Mig langaði til að hafa það þar. Mig langaði til að taka utan um þig'. Mig langaði til að elska þig. Mér hefur aldrei liðið þannig áður og ég kunni ekki við það. Ég var hræddur við tilfinningar mínar.“ Ég leit á hann með nýrri virðingu. Hann tók þéttar um hendur mínar yfir hliðið. „Ég — ég elska þig Kay,“ sagði hann. Mér hlýnaði um hjartaræt- urnaf eins og hreinskilin og við- kvæmnin lægði ofsann. „Ég elska þig líka, Dick,“ sagði ég. Hann tók utan um mig yfir hliðið, ég sneri andlitinu að hon- um og hann kyssti mig. Ég fann fyrir hliðinu á milli okkar en ég vissi, að það hafði ekkert að segja. Þegar Dick var annars vegar þurfti ég ekki á hliðinu að halda. Ég gat kysst hann og villtar, dásamlegar tilfinningar fóru um mig, en ég vissi, að þó hliðið væri þarna skipti það engu máli. Hann var vitrari en ég . Hann hafði metið og vegið sínar hvatir en ég aftur á móti tekið þroskanum eins og villt, skynlaus skepna. Við höfðum bæði lært. Ég endurgalt koss hans og gat haft hemil á þránni í brjósti mér. Því hún var annað og meira en eðlishvöt. Hún var hvísluð orð, handarbönd, blíða og ást og að lokum blómum stráður brúðarbekkur, gullhringur og heilög loforð. Þar yrði orgelspil og brosandi andlit. Þáð myndi loga ljós í hvelfingunni, þegar haldið yrði á brott. Og hægt yrði að skynja að þetta væri hin sanna byrjun, upphaf sköpunar- innar og gengið yrði öruggum skrefum inn í þá alsælu, sem væri maklega verðskulduð. * DÝRT AÐ VERA SVER Það er ekki löglegt að vera of sver, var mðurstaðan í merkilegum réttarhöld- um, þar sem hjón nokkur voru dæmd til skaðabóta fyrir tjón á hóteli. Þetta skeði í Cannes í Frakklandi. — Hjúin höfðu eyðilagt tvíbreitt rúm í herbergi sínu á hótelinu og það var kannske ekki svo merkilegt. Hann var 160 kg að þyngd og hún 150 kg. # 32 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.