Heimilisritið - 01.09.1957, Page 39

Heimilisritið - 01.09.1957, Page 39
Heimsveldi mauranna Eftir H. G. Wells ÞEGAR Gerillo kapteinn fékk skipun um að fara á nýja fallbyssubátnum sínum Benjn- mín Constant, upp Badamána og hjálpa íbúunum í baráttu þeirra við mauraplágu, grunaði liann yfirvöldin um háð og spé. Framabraut hans hafði verið all-skrykkjótt og rómantísk, fögur augu Brasilíukvennanna og gullnar veigar höfðu átt sinn þátt í því. Hann var kynblendingur af portúgala og indíána, en fyrir því trúði hann engum, nema Holroyd, enska vélstjóranum, sem fylgdi skipinu, þegar Gerillo tók við stjórn á því. „Þetta er gert til að gera mig að athlægi,“ sagði hann. „Hvað getur maður gert við maura? Þeir koma, þeir fara.“ „Þeir segja,“ svaraði Holroyd „að þessir fari ekki. Þessi ná- ungi, sem þú sagðir að væri Sambó —“ „Já, það eru einhverskonar kynblendingsbjálfar,“ sagði kapteinninn. „Hann sagði, að fólkið færi.“ Kapteinninn tottaði pípuna ergilega um stund. „Hjá þessu verður ekki komizt,“ sagði hann svo. „Og hvað um það? Maura- plágur og svoleiðis er guðs ráð- stöfun. Það er plága á Trinidad — litlir maurar, sem safna laufum. Eyðileggja appelsínu- trén eða mangólatrén. Hvað gerir það til? Stundum koma mauraherir inn í húsin — bar- daga-maurar, allt önnur tegund. Maður fer, og þeir hreinsa hús- ið. Svo kemur maður aftur, húsið er tandurhreint, eins og nýtt! Engir kakalakkar, engar flær og flugur og köngulær! Fínt!“ „Þessi Sambónáungi,“ sagði Holroyd, „segir, að þetta séu öðruvísi maurar.“ Kapteinnninn yppti öxlum Qg púaði pípuna. Seinna sneri hann sér aftur að efninu. „Góði Holroyd, hvað get ég gert við þessa bölvaða maura?“ Kapteinninn var þungt hugs- HEIMILISRITIÐ 37

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.