Heimilisritið - 01.09.1957, Síða 40
andi. „Þetta er hlægilegt,“ sagði
hann.
En um kvöldið klæddist hann
hreinum einkennisbúningi og
fór í land, og síðan komu kass-
ar og krukkur um borð, og að
lokum hann sjálfur.
Og Holroyd sat á þilfarinu í
kvöldsvalanum og reykti í ákafa
og íurðaði sig yíir Brazilíu.
Þeir voru komnir sex daga leið
upp Amazón, nokkur hundruð
mílur frá hafinu, og til austurs
og vesturs var sjóndeildarhring-
urinn eins og haf. Vatnið rann
eins og leðja, þykkt al* óhrein-
indum, lifandi af krókódílum og
gargandi fuglum og löðrandi af
einhverri ótæmandi uppsprettu-
lind trjástofna. Honum óaði öll
þessi sóun, þessi endalausa víð-
átta. Mannabústaðir voru fáir
og sjaldsénir, líkastir framandi
hlutum í þessu óendanlega ríki
villtrar náttúru, eins og tíeyr-
ingur í Sahara-eyðimörk.
Hann var ungur maður, þetta
var í fyrsta sinn, er hann sá
hitabeltið, hann kom beint frá
Englandi, þar sem náttúran er
tamin, þurrkuð upp með skurð-
um, umlukt girðingum og verð-
ur að lúta yfirráðum mannsins.
En nú uppgötvaði liann allt í
einu vanmegun mannsins. í sex
daga höfðu þeir haldið upp í
landið frá hafinu, og maðurinn
var álíka sjaldséður og fágæt
fiðrildi.
Einn daginn sáu þeir stakan
eintrjáning, annan daginn
fljótsstöð í l'jarska, næsta dag
engan vott um mannverur.
Honum fór að skiljast, að
maðurinn væri vissulega sjald-
gæf lífvera, sem ekki hefði náð
nema lítilsháttar fótfestu í
þessu landi.
Honum varð þetta enn ljós-
ara eftir því sem dagarnir liðu,
undir stjórn þessa merkilega
herforingja, sem réði yí'ir einni
stórri byssu og var forboðið að
eyða skotfærum. Og veðrið, eins
og allt annað í þessum nýja,
furðulega heimi, var fjandsam-
legt manninum, það var heitt á
daginn og heitt á nóttunni, loft-
ið var sem gufa, jafnvel vindur-
inn var heit gufa, þrungin rotn-
unarlykt. Og krókódílarnir og
skrítnu fuglarnir, flugur af ýms-
um stærðum og gerðum, maur-
arnir, slöngurnar og aparnir
virtustu undrast, hvað maður-
inn væri að vilja í andrúmslofti,
þar sem engin gleði var í sól-
skininu og enginn svali um
nætur. Það var óþolandi að
vera í fötum, en ef maður fór
úr þeim, stiknaði maður á dag-
inn og var etinn af mýflugum
um nætur. Færi maður upp á
þilfar að degi til, blindaðist
38
HEIMILISRITIÐ